Fimmtudagur, 12. apríl 2018
Ríkisstjórnin metur vogunarsjóðina meira en öryrkja!
Við umræður um fjármálaáætlun á alþingi í dag sagði Birgir Þórarinsson þingmaður Miðflokksins,að ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur hefði veitt fjármagni til vogunarsjóða í stað þess að láta það ganga til öryrkja.Bankaskattur hefði verið lækkaður og arðgreiðslur auknar til vogunarsjóða,sem ættu í bönkunum; alls hefðu 2 milljarðar verið færðir til vogunarsjóða frá bönkunum í stað þess að láta öryrkja njóta fjármagnsins. Þetta er ríkisstjórn vogunarsjóðanna,sagði Birgir.
Björgvin Guðmundsson
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkur: Bloggar | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.