Þriðjudagur, 22. janúar 2019
Hvers vegna setti VG engin skilyrðii?
Hvers vegna setti VG engin málefnaleg skilyrði fyrir stjórnarsamstarfi við Sjálfstæðisflokkinn? Það kemur flokknum í koll núna. Hann kemur engum af stefnumálum sínum fram. Sjálfstæðisflokkurinn virðist ráða öllu í stjórninni.- Fyrir. kosningar boðaði VG hækkun lífeyris aldraðra.Sá lífeyrir hefur ekki verið hækkaður um eina krónu að raungildi að frumkvæð stjórnar VG (KJ)-Meira að segja ákvæðið um kjaramál var algerlega eftir höfði íhaldsins,sagt að hækkanir hefðu orðið svo miklar á launum undanfarandi,að samkeppnissjónarmið leyfðu varla meiri hækkanir. Andrés Ingi þingmaður VG sagði,þegar hann sá þetta orðalag,að það hefði verið eins og það hefði verð samið í Viðskiptaráði!Þetta er ástæðan fyrir því að KJ leggst gegn öllum launahækkunum verkafólks í yfirstandandi kjaradeilu.
Þegar Nýsköpunarstjórnin var mynduð 1944 og Alþýðuflokkurinn gekk til samstarfs við Sjálfstæðisflokk og Sósialistaflokk setti flokkurinn það skilyrði fyrir stjórnaraðild,að stofnaðar yrðu almannatryggingar.Það var samþykkt.Og þegar Viðreisnarstjórnin var mynduð 1959 setti Alþýðuflokkurinn það skilyrði fyrir þátttöku,að almannatryggingar yrðu stórefldar með eflingu fjölskyldbóta. Það var samþykkt.Það þýðir ekki að fara í samstarf við óskylda flokka án þess að setja skilyrði.Það er ekki nóg að fara fram á forsætisráðherrann; hégóminn einn dugar ekki. Forsætisráðherrann er nánast aðeins fundarstjóri ríkisstjórnar.Hann ræður engu nema þeim málum,sem lögð eru til hans. Fjármálaráðherra er valdamesti maður ríkisstjórnarinnar.
Björgvin Guðmundsson
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:58 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.