Laugardagur, 23. febrúar 2008
Félag eldri borgara:Enn langt í land
Félag eldri borgara í Reykjavík (Feb.)hélt fjölsóttan aðalfund í dag. Margrét Margeirsdóttir,formaður félagsins flutti skýrslu stjórnar um starfsemi félagsins sl. starfsár. Hún fagnaði ýmsum umbótum í málefnum eldri borgara á árinu svo sem flutningi á málaflokknum til félags-og tryggingamálaráðuneytis. Hún kvað einnig minni tekjutengingar til bóta en sagði,að enn væri langt í land að öll markmið samtaka eldri borgara næðust. Hún minnstist m.a. á skerðingar vegna lífeyrissjóðstekna í því sambandi. Kvað hún félagsmálaráðherra hafa lofað að beita sér fyrir úrbótum í því efni en þær hefðu ekki komið enn.
Samþykkt var að hækka ætti lífeyri eldri borgara í sem svarar neysluútgjöld samkvæmt könnun Hagstofu Ísland en það þýðir 226 þúsund króna lífeyri á mánuði fyrir einhleypinga,fyrir skatta.
Björgvin Guðmundsson
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.