Föstudagur, 29. febrúar 2008
Íhaldið valtar yfir F-listann
Tilkynnt hefur verið,að Kjartan Magnússon,Sjálfstæðisflokki,verði formaður REI til viðbótar því,að hann er formaður Orkuveitu Rvíkur.Það hafði jafnvel verið búist við því,að Ásta Þorleifsdóttir,F-lista, yrði formaður REI þar eð Sjálfstæðisflokkurinn er með formennsku í Orkuveitunni.En svo varð ekki enda þótt Sjálfstæðisflokkurinn sé með formennsku
i öllum nefndum.Ljóst er,að Sjálfstæðisflokkurinn valtar algerlega yfir Ólaf og F-listann.-
Kjartan er ágætis maður en fyrr má nú rota en dauðrota.
Björgvin Guðmundsson
.
o
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.