Þriðjudagur, 11. mars 2008
ESB kosningamál fyrir næstu þingkosningar
Sigurður Einarsson, forstjóri Kaupþings, sagði í pallborðsumræðum á ráðstefnu um íslensk efnahagsmál í Kaupmannahöfn í dag, að líklegt sé að Íslendingar taki upp nýja mynt innan þriggja ára.
Sérstakur gestur ráðstefnunnar var Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra en auk hennar og Sigurðar töluðu Sigurjón Sighvatsson, kvikmyndaframleiðandi og Richard Portes, hagfræðiprófessor.
Ingibjörg Sólrún var í pallborðsumræðunum m.a. spurð hver væri afstaða íslensku ríkisstjórnarinnar til aðildar landsins að Evrópusambandinu. Hún svaraði að þar sem allir flokkar nema Samfylkingin væru andsnúnir aðilarviðræðum hefði málið ekki verið rætt til hlítar hvorki meðal almennings né stjórnvalda. Hún taldi hins vegar sennilegt að vegna umræðu um evruna og stöðu krónunnar yrði aðildin að kosningamáli fyrir næstu alþingiskosningar.
Þetta er í fyrsta sinn,sem ráðherra í núverandi ríkisstjórn talar um að' aðild að ESB verði á dagskrá í næstu þingkosningum.Mjög líklegt er að Ísland sæki um aðild að ESB í byrjun næsta kjörtímabils.
Björgvin Guðmundsson
Nýr gjaldmiðill innan 3 ára? | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.