Aðgerðaráætlun í málefnum barna í framkvæmd

Félags- og tryggingamálaráðuneytið og samráðshópur ráðuneyta um framkvæmd aðgerðaáætlunar ríkisstjórnarinnar í málefnum barna stóð fyrir fjölmennri ráðstefnu á Grand Hótel Reykjavík fyrir skömmu.. Tilgangurinn var að kynna ólíkar aðferðir til eflingar foreldrafærni. Aðalfyrirlesarar  voru dr. Alan Ralph, prófessor við University of Queensland, Brisbane, Ástralíu, og Björn Arnesen félagsráðgjafi, frá Kompetansesenter for Atferd, Þrándheimi, Noregi.

Aðstoðarmaður félags- og tryggingamálaráðherra flutti ávarp ráðherra í forföllum hennar og sagði meðal annars:

„Vandað uppeldi barnsins í frumbernsku og snemmtæk íhlutun með öflugum stuðningi við foreldra er líklegri til að skila varanlegri árangri en nokkuð annað. Þess vegna varðar mestu að efla færni foreldra til að skynja og skilja þarfir barnsins í bernskunni og til að bregðast við og eiga aðgang að viðeigandi aðstoð þegar með þarf.

Í þessu felst kjarninn í nýjum áherslum aðgerðaáætlunar í málefnum barna um stefnu til eflingar foreldrahæfni.“

Það var samþykkt á sumarþinginu að gera aðgerðaráætlun í málefnum barna og siðan hefur verið unnið að henni. Ráðstefnan  var liður i því starfi. Hér er um mjög mikilvægt mál að ræða og ber að fagna því að það skuli komið vel á veg.

Björgvin Guðmundsson


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband