Eftirlýsti Pólverjinn handtekinn

Pólskur karlmaður, sem er búsettur hérlendis og er eftirlýstur í heimalandi sínu vegna gruns um aðild að morði, var handtekinn um sjö leytið í gærkvöld, að sögn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. 

Handtökubeiðni barst lögreglunni frá pólskum yfirvöldum síðdegis og var maðurinn handtekinn í kjölfarið. Rætt var við þennan Pólverja í kastljósi RUV í gærkveldi.Pólverjinn var hinn rólegasti og svaraði öllum spurningum vel og yfirvegað. Hann var alls ekki glæpamannslegur. Síðan var rætt við löreglustjórann  á höfuðborgarsvæðinu og  hann staðfesti,að umræddur Pólverji væri grunaður um aðild að morði. Lögreglustjóri skýrði vel hvað við væri að etja í viðureign við glæpamenn . Ekki er unnt að handtaka útlendinga,sem hér dvelja vegna afbrota erlendis nema handtökubeiðni berist.

 

Björgvin Guðmundsson


mbl.is Efirlýstur maður handtekinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband