Neytendasamtökin vilja bæta verðmerkingar

Neytendasamtökin hvetja neytendur til að taka þátt í samstilltu átaki á morgun á milli 15 og 18.  Markmiðið er að hvetja verslanir til að sinna verðmerkingum betur og sjá til þess að þær séu ávallt réttar og til staðar.

Á vef Neytendasamtakanna kemur fram að  allar vörur eiga að vera verðmerktar enda sé það forsenda þess að neytendur geti tekið meðvitaða ákvörðun við kaup. Því miður er allt of algengt að verðmerkingar vanti eða að verðupplýsingar séu rangar og slíkt er ólíðandi. Í matvöruverslunum getur verð á hillukanti verið annað en verð á kassa og dæmi eru um að tilboðsverð skili sér ekki á kassann. 

Átakið felst í því að virkja sem flesta neytendur því með samtakamætti getum við haft áhrif og gert seljendum ljóst að við sættum okkur ekki við ófullnægjandi, rangar eða jafnvel engar verðupplýsingar,"  að því er segir á vef  Neytendasamtakanna.

Það ber að þakka Neytendasamtökunum fyrir þetta framtak.Verðmerkingar eru í miklum ólestri og mikil þörf á að gera átak til þess að bæta þar úr.

 

Björgvin Guðmundsson

Fara til baka 


mbl.is Neytendasamtökin með átak í verslunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband