Föstudagur, 18. apríl 2008
Dagur B:Tillaga um REI þvert á yfirlýsingu borgarstjóra
Borgarstjóranum nýja er stillt upp við vegg á forsíðum dagblaðanna meðan Sjálfstæðisflokksmenn í borginni reyna að leysa ágreining sinn og vanda í valdabaráttu með því að selja REI á kostnað Orkuveitunnar og borgarbúa. Þetta er niðurstaða Dags B. Eggertssonar um nýjustu tíðindi af sögunni endalausu í Ráðhúsi og Orkuveitu Reykjavíkur.
Samkvæmt forsíðufrétt Fréttablaðsins ætlar borgarstjórnarflokkur Sjálfstæðisflokksins að leggja fram tillögu um sölu REI á fundi Orkuveitu Reykjavíkur sem hefst nú klukkan 11, segir Dagur í fréttatilkynningu sem hann sendi út í morgun. Þetta er þvert á yfirlýsingar borgarstjóra í Kastljósi í gær og virðist raunar einnig vera í mótsögn við málefnasamning sitjandi meirihluta þar sem einkavæðing orkufyrirtækja er útilokuð.
Niðurstaða Sjálfstæðisflokksins virðist enn og aftur vera viðbragðs-pólitík, að þessu sinni vegna harðorðs leiðara Morgunblaðsins í gær þar sem stefnuleysi og hringlandaháttur borgarstjórnarflokksins var kallaður lágkúrulegur, borgarstjórnarflokkurinn sagður forystu- og dómgreindarlaus og ástandið hörmulegt, en því miður staðreynd.
Sjálfstæðisflokkurinn í borginni gerir þó illt verra með óábyrgum skyndihugmyndum um sölu REI.
Það er hver höndin upp á móri annarri í meirihlutanum í borgarstjórn. Ágreingur hefur ekki minnkað frá því sl. haust.Ágreiningur innan borgarstjórnarflokks Sjálfstæðiaflokksins er enn til staðar en við það bætist nú ágreiningur milli Ólafs borgarsstjóra og Sjálfstæðisflokksins.,
Björgvin Guðmundsson
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.