Þriðjudagur, 29. apríl 2008
Lægstu laun komin langt fram úr lífeyri aldraðra! Gliðnun byrjuð á ný
Samkvæmt línuriti,sem ég er með fyrir framan mig yfir bætur almannatrygginga og dagvinnutekjutryggingu verkafólks eru lægstu laun verkafólks ( dagvinnutekjutrygging verkafólks) nú komin langt fram úr lífeyri aldraðra og öryrkja ( grunnlífeyrir,tekjutryggging og heimilisuppbót). Lægstu laun eru 145 þús. á mánuði en hæsti
llfeyrir frá TR 135.900. fyrir einhleypinga. En samkvæmt línuritinu var lífeyrir lífeyrisþega hærri en lægstu laun í mörg ár þar á undan. Ástæða þessa er sú,að lífeyrisþegar fengu ekki rétta uppbót á lífeyri sinn í kjölfar kjarasamninganna í febrúar. Það vantar 9100 kr. upp á á mánuði að uppbæðin sé rétt miðað við þau viðmið,sem samið var um 2003 og 2006. Þetta eru 3,3 milljarðar á ári. Fjármálaráðherra reiknaði út uppbót lífeyrisþega og hann hefur vanreiknað hana. Þetta verður að leiðrétta strax. Það á ekki að skerða kjör lífeyrisþega.Það á að bæta þau.
Björgvin Guðmundsson
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Lífeyrisþegar hafa þurft að þola standslausar skerðingar og er tími til kominn að eitthvað sé gert í því. Ég er mjög svo sammála þér Björgvin.
Með virðingu og vinsemd. Svanurinn.
Svanur Heiðar Hauksson, 29.4.2008 kl. 10:26
Jæja þá er Smafylkingin komin til valda hvert er hlutverk hennar í ríkistjórninni að skerða bætur það hefur hún gert fyrr og gott ef hún fann ekki upp þá taktík að skerða alla mögulega hluti í nafni jöfnuður. svona er jöfnuður eða hitt þó heldur
jón Ó Vilhjálmsson (IP-tala skráð) 29.4.2008 kl. 10:40
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.