Þriðjudagur, 29. apríl 2008
Kvótinn: Braskað með 1000 milljarða
Rætt var á alþingi í dag um þingsályktunartillögu nokkurra þingmanna um að Ísland samþykki álit Mannréttindanefndar Sþ. um kvótakerfið.Harðar deilur urðu um málið. Grétar Mar þingmaður frjálslyndra sagði,að nokkrir útvaldir hefðu fengið fiskveiðiheimilildirnar "gefins" í upphafi. Heimildirnar væru nú að verðmæti um 1000 milljarðar.Þær væri braskað með. Jón Magnússon þingmaður frjálslyndra spurði Karl Matthíasson þingmann Samfylkingar hvort hann samþykkti að ríkisstjórnin yrði við kröfu Mannréttindanefndar Sþ. um breytingar á kvótakerfinu. Karl svaraði því játandi.
Álit MANNRÉTTINDANEFNDAR SÞ. er bindandi. Það verður að fara eftir því og breyta kvótakerfinu eins og nauðsynlegt er vegna álitsins.
Björgvin Guðmundsson
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:30 | Facebook
Athugasemdir
Það verður fróðlegt að fylgjast með framvindunni.
Heimir Lárusson Fjeldsted, 29.4.2008 kl. 22:41
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.