Miðvikudagur, 30. apríl 2008
40 geislafræðingar hætta einnig
40 geislafræðingar ætla að hætta störfum á Landspítalanum á miðnætti, samkvæmt samkvæmt upplýsingum Ásbjörns Jónssonar, sviðsstjóra myndgreiningarsviðs Landspítala. Í gær ákváðu einnig rúmlega hundrað skurð- og svæfingarhjúkrunarfræðingar að standa við uppsagnir sínar.
Stjórn spítalans sagði upp vaktakerfi geislafræðinga og hjúkrunarfræðinganna og átti uppsögnin að taka gildi á miðnætti. Starfsfólkið sagði þá upp störfum.
Stjórnendur spítalans ákváðu á mánudag að fresta gildistöku vaktakerfisins til 1. október og fóru þess á leit við geislafræðinga og hjúkrunarfræðinga að fresta uppsögnum til 1. október. Þeir hafa nú hafnað því.
Vandræðin á Landspítala ætla engan endi að taka.Ekki verður séð að stjórn spítalans komist út úr þessum vandræðum öðru vísi en að draga alveg til baka nýja vaktafyrirkomulagið,sem setja átti í framkvæmd.
Björgvin Guðmundsson
Geislafræðingar hætta | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.