Halli á vöruviđskiptum viđ útlönd eykst.Mest aukning á innflutningi bíla!

Fyrstu ţrjá mánuđi ársins voru fluttar út vörur fyrir 78 milljarđa króna en inn fyrir 102,7 milljarđa króna fob (111,9 milljarđa króna cif). Halli var á vöruskiptunum viđ útlönd, reiknađ á fob verđmćti, sem nam 24,7 milljörđum en á sama tíma áriđ áđur voru ţau óhagstćđ um 12,3 milljarđa á sama gengi. Vöruskiptajöfnuđurinn var ţví 12,5 milljörđum króna óhagstćđari en á sama tíma áriđ áđur.

Á vef Hagstofu Íslands kemur fram ađ í marsmánuđi voru fluttar út vörur fyrir 34,3 milljarđa króna og inn fyrir 37,1 milljarđ króna fob (40,5 milljarđa króna cif). Vöruskiptin í mars, reiknuđ á fob verđmćti, voru ţví óhagstćđ um 2,8 milljarđa króna. Í mars 2007 voru vöruskiptin óhagstćđ um 4 milljarđa króna á sama gengi.


Fyrstu ţrjá mánuđi ársins 2008 var verđmćti vöruútflutnings 10,1 milljarđi eđa 11,4% minna á föstu gengi en á sama tíma áriđ áđur. Sjávarafurđir voru 41% alls útflutnings og var verđmćti ţeirra 15,4% minna en á sama tíma áriđ áđur. Útfluttar iđnađarvörur voru nćr helmingur alls útflutnings og var verđmćti ţeirra 11,7% meira en áriđ áđur. Mestur samdráttur varđ í útflutningi skipa og flugvéla og sjávarafurđa, ađallega frystra flaka, en á móti kom aukning í útflutningi á áli.

 

Fyrstu ţrjá mánuđi ársins 2008 var verđmćti vöruinnflutnings 2,4 milljörđum eđa 2,4% meira á föstu gengi en á sama tíma áriđ áđur. Mest aukning varđ í innflutningi á fólksbílum og hrá- og rekstrarvörum en á móti kom samdráttur í innflutningi á flugvélum og fjárfestingavöru.

Ţađ er stórundanlegt,ađ aukning skuli mest vera í innflutningi bíla á fyrstu 3 mánuđum ársins ţrátt fyrir samdrátt í efnahagslífinu og gengislćkkun krónunnar um 25%   Ţađ er  eins og Íslendingar taki ekkert mark á efnahagslegum stađreyndum. Ţeir lemja hausnum viđ steininn.

 

Björgvin Guđmundsson

 



mbl.is Aukinn halli á vöruskiptum
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband