Hefur einkarekstur brugðist í heilbrigðiskerfinu?

Rætt var um einkarekstur í heilbrigðiskerfinu á alþingi í fyrradag. Þuríður Backman þingmaður VG tók málið upp  utan dagskrár í tilefni af athugasemdum ríkisendurskoðanda við rekstur hjúkrunarheimilisins Sóltún,sem er einkarekið heimili.Það hefur alla tíð fengið hærri greiðslur frá ríkinu en önnur hjúkrunarheimili.Munur hér 14-17%.Ríkisendurskoðandi hefur gert athugasemdir við skráningar Sóltúns. Telur ríkisendurskoðun,að ekki komi fram í skráningum,að sú meðferð hafi verið veitt sem heimlið gerir kröfu um að fá greiddar.Þuríður Backman  sagði,að  ljóst væri samkvæmt þessu dæmi,að  einkarekin heimili væru dýrari í rekstri en  hjúkrunarheimli á vegum hins opinbera og sjálfseignarstofnanir.

Guðlaugur Þór ráðherra sagði,að 80 % allra hjúkrunarheimila væru einkarekin. Hér gaf ráðherra ekki tæmandi upplýsingar,þar eð flest einkareknu heimili eru sjálseignarstofnanir,sem ekki eru rekin í gróðaskyni. Hins vegar er þessu öðru vísi farið með Sóltún. Þar ræður hagnaðarvonin.Ef til vill skýrir það mikinn kostnað við rekstur heimilisins.

 

Björgvin Guðmundsson

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband