Sjóminjasafnið opnað á ný

Víkin,  sjóminjasafnið í Reykjavík, var opnað formlega á ný á Grandagarði 8 í morgun eftir gagngerar endurbætur. Jafnframt voru opnaðar fimm sýningar sem rekja þróun og fiskveiða og strandmenningar landsmanna í aldanna rás.

Varðskipið Óðinn verður nú hluti af safninu, sem fékk skipið afhent með formlegum hætti í gær. Skipið liggur við sérstaka bryggju safnsins og gefst gestum kostur á að skoða skipið undir leiðsögn.  Einnig er dráttarbáturinn Magni við safnbryggjuna en hann er fyrsta stálskipið sem smíðað var á Íslandi í Stálsmiðjunni í Reykjavíkurhöfn.

Sjóminjasafnið er staðsett í gamla frystihúsi Bæjarútgerðar Reykjavíkur.

Það er Sigrún Magnúsdóttor,fyrrverandi borgarfulltrúi,sem veitir Sjóminjasafninu forstöðu en hún á stærsta þáttinn í því að safnið hefur komist á fót. Á hún miklar þakkir skilið fyrir dugnað og elju við að stofnsetja safnið og endurbæta.

 

Björgvin Guðmundsson 


mbl.is Sjóminjasafn opnað eftir endurbætur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband