Föstudagur, 6. júní 2008
Byrjað að grafa fyrir álveri í Helguvík
Skrifað var nú síðdegis undir samning milli Norðuráls og Íslenskra aðalverktaka um byggingu kerskála við væntanlegt álver Norðuráls í Helguvík. Var fyrsta skóflustungan að kerskálanum síðan tekin en undirritunin fór fram á kerskálalóðinni.
Viðstödd undirritunina voru m.a. Björgvin G. Sigurðsson, viðskiptaráðherra, Árni M. Mathiesen, fjármálaráðherra, John P. O Brien, stjórnarformaður Century Aluminum, móðurfélags Norðuráls, Árni Sigfússon, bæjarstjóri Reykjanesbæjar og Oddný Guðbjörg Harðardóttir, bæjarstjóri sveitarfélagsins Garðs. Tóku þau öll skóflustungu á álverslóðinni.
Ekki verður aftur snúið. Bygging álvers í Helguvík er hafin.Það undarlega er,að ríkisstjórnin þarf ekki að leyfa bygginguna. Það er sveitarstjórnin sem gefur leyfi'.Sjálfsagt verða áfram skiptar skoðanir um það hvort rétt hafi verið að leyfa bygginguna nýs álvers.
Björgvin Guðmundsson
Fyrsta skóflustunga að álveri | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.