Sigurður G.Kristjánsson skammar Samfylkinguna,svo og Björn Bjarnason

Sigurður Kári Kristjánsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, tekur undir gagnrýni Björns Bjarnasonar dómsmálaráðherra á Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra. Björn Bjarnason skýtur nokkrum skotum að Björgvini í nýrri færslu á heimasíðu sinni.

Björn skammar Björgvin meðal annars fyrir að hvetja sjálfstæðismenn til þess að taka afstöðu til Evrópusambandsins eins og haft var eftir honum í fréttum Ríkisútvarpsins.

„Sjálfstæðismenn í ríkisstjórn gefa ekki yfirlýsingar um nauðsyn þess, að Samfylking breyti um stefnu í umhverfismálum eða Evrópumálum. Þeir virða þá stefnu, sem samstarfsflokkur þeirra hefur mótað og þann sáttmála, sem síðan hefur verið gerður um samstarf flokkanna. Engum sjálfstæðismanni dettur í hug að krefjast þess, að Björgvin ræði um umhverfismál og stóriðju við Þórunni Sveinbjarnardóttur, þótt allir sjái, að þess kunni að vera þörf," skrifar Björn.

Sigurður Kári segir á vefsíðu sinni í dag að sér finnist ástæða til að taka undir þessi orð Björns Bjarnasonar, því hann sé honum hjartanlega sammála.

Það hafa aukist ífingar milli stjórnarliða undanfarið,sennilega vegna erfiðleika í efnahagsmálum.Hvort  þessi  ágreiningur ristir djúpt skal  ósagt látið.

Björgvin Guðmundsson


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband