Föstudagur, 4. júlí 2008
Baugur flytur úr landi
FL Group hefur verið breytt í Stoðir, eignarhaldsfélag, í kjölfar endurskipulagningar á rekstri og fjárfestingastefnu félagsins. Stoðir hafa keypt kjölfestuhlut í Baugi Group fyrir 25 milljarða króna sem greiðast með hlutabréfum í Stoðum. Seljandi hlutarins er Styrkur Invest sem er í meirihlutaeigu Gaums.
Eins og áður sagði er kaupverð hlutarins 25 milljarðar króna og verður greitt fyrir hlutinn með hlutabréfum í Stoðum sem verður í nýjum hlutaflokki B bréfa sem bera ekki atkvæðisrétt. Viðskiptin eru gerð með fyrirvara um áreiðanleikakönnun og samþykki hluthafafundar Stoða sem auglýstur verður síðar.
Eftir viðskiptin munu Stoðir fara með tæplega 40% virkan eignarhlut í Baugi auk þess að eiga eignarhlut í B hlutaflokki félagsins sem ekki veitir atkvæðisrétt. Aðrir hluthafar í Baugi eru Kevin Stanford, Don McCarthy, Bague SA og starfsmenn félagsins. Stærsti hluthafi Stoða er Styrkur Invest.
Baugur hefur fyrir þessi viðskipti lokið við sölu allra eigna á Íslandi og mun eftirleiðis leggja alfarið áherslu á fjárfestingar í smásöluverslun í Bretlandi, Norðurlöndum og Bandaríkjunum. Meginhluti starfsemi Baugs verður staðsettur í London. Meðal stærstu fjárfestinga Baugs eru Iceland, House of Fraser, Mosaic Fashions, Hamley´s, Whistles, Goldsmiths, Magasin du Nord, Illum og Saks, að því er segir í tilkynningu.
Með kaupum á eignarhlut í Baugi eykst eigið fé Stoða um 25 milljarða króna en nánari upplýsingar um efnahag Stoða verða birtar í uppgjöri félagins fyrir fyrstu sex mánuði ársins 2008 sem kynnt verður þann 29. ágúst nk.
Í framhaldi af viðskiptunum er stefnt að samnýtingu ákveðinna rekstrarþátta í starfsemi Stoða og Baugs og er m.a. gert ráð fyrir að starfsemi félaganna í London verði færð undir sama þak í húsakynnum Baugs.
Fjárfestingafélagið FL Group verður nú eignarhaldsfélagið Stoðir. FL Group var upphaflega móðurfélag rekstrarfélaga í flugrekstri og ferðaiðnaði. Stærsta eign FL Group var Icelandair sem selt var í desember 2006 og nafnið FL Group var skírskotun til fyrra nafns Icelandair, Flugleiða. FL Group hefur tekið miklum stakkaskiptum síðustu misserin.
Starfsemi félagsins hefur verið endurskipulögð og fjárfestingastefnunni breytt. Nafnið FL Group endurspeglar því ekki núverandi starfsemi félagsins. Nafnið Stoðir lýsir vel meginviðfangsefnum
þess. (mbl.is)
Þessar miklu breytingar koma ekki alveg á óvart.Það var búist við flutningi Baugs til útlanda og það hefur nú verið staðfest.Með þessum breytingum getur Jón Ágeir áfram verið stjórnarformaður Baugs.Konan hans er stjórnarformaður Stoða,áður Fl Group. Þannig að þau hjón geta áfram haldið um alla tauma síns
viðskiptaveldis,þrátt fyrir,að Jón megi ekki vera formaður í stjórn íslenks hlutafélags næstu 3 ár.
Björgvin Guðmundsson
FL Group verður Stoðir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.