Sunnudagur, 13. júlí 2008
Hernaður gegn Íran?
George W. Bush Bandaríkjaforseti hefur gefið Ísraelum gult ljós á að hefja undirbúning að hernaðaraðgerðum gegn Írönum, samkvæmt heimildum embættismanna í bandaríska varnarmálaráðuneytinu. Þetta kemur fram á fréttavef Ha'aretz.
Gult þýðir, undirbúið ykkur verið reiðubúnir til tafarlausrar árásar og látið okkur vita þegar þið eruð tilbúnir," segir einn embættismannanna í samtali við The Sunday Times.
á segir hann Bush hafa gert ísaelskum ráðamönnum grein fyrir því að Bandaríkjastjórn styðji Ísraela í því að gera loftárásir á kjarnorkutilraunastöðvar Írana, með langdrægum eldflaugum, skili samningaviðræður ekki árangri.
Bush mun þó hafa tekið skýrt fram að bandaríkir hermenn muni ekki taka þátt í slíkri árás og að ekki verði veitt hernaðaraðstaða til slíkrar árásar í Írak. (mbl.is)
Ekki líst mér á ,að hernaðaraðgerðir gegn Íran verðu undirbúnar.Það þarf að leysa deilumál friðsamlega enn ekki með hernaði.
Björgvin Guðmundsson
Bush gefur gult ljós á árás | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Ísraelsmenn hafa þurft að sitja undir stöðugum hótunum Írana um gereyðingu í mörg ár. Bandaríkjamenn hafa orðið fyrir því sama og eru kallaðir af Mamoud Ahmadi-Nejad, hinn mikli Satan.
Þarf að bíða eftir því að þessi brjálæðingur komist yfir kjarnavopn og haldi heiminum í heljargreipum og komist yfir allar olíulindir við Persafóann.?
Hér er hin pólitíska tilskipun Íslams um heimsyfirráð:
Heimsyfirráð, imperialism.
Berjist þangað til allir dýrka Allah.
Kóran. Kaflinn um þýfið. 008:039. Og berjist (qaatiloohum) við þá þangað til að engin ringulreið, óregla eða nauðung (skurðagoðadýrkun eða vantrú á Allah) ríkir lengur, og það ríkir réttlæti(Íslam og Sharía lög) og trú eingöngu og allsstaðar á Allah;
Kóran 002:193 boðar það sama.
Því miður þá boðar Kóraninum að Múslímar séu allra þjóða bestir og því ýtir hið pólitíska Íslam undir mikilmennskubrjálæði hjá Múslímum (sjá Kóran 002:142). Það er því erfitt að koma vitinu fyrir slíkt fólk með samningum.
Svo hvað er til ráða. Kann einhver góð ráð til að tjónka við Múslíma?
Skúli Skúlason (IP-tala skráð) 14.7.2008 kl. 13:30
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.