Aldraðrir eiga að hafa í lífeyri 226 þús. á mánuði að lágmarki

Í dag birtist í Morgunblaðinu grein eftir Björgvin Guðmundsson um lífeyrismál aldraðra.Þar  segir,að aldraðir einhleypingar  eigi að hafa í lífeyri 226 þús kr. á mánuði að lágmarki. Það samsvarar meðaltals neysluútgjöldum á mánuði samkvæmt könnun Hagstofu Íslands  frá des,sl.Samfylkinginnm setti fram þetta stefnumið fyrir síðustu  þingkosningar og sagði,að hún vildi hækka lífeyrinn í þessa fjárhæð í áföngum. Ekkert bólar á framkvæmdinni eftir rúmt ár í ríkisstjórn.Það hefur ekkert miðað í áttinna. Það hefur miðað aftur  á bak. Grein mín var rituð 1.júlí  sl. Þá  átti endurskoðunarnefnd almannatryggingalaga að skíla áliti um framfærsluviðmið,sem  hugmyndin var sennilega að byggja lífeyri aldraðra og  öryrkja á. En nú 14.júlí hefur þetta framfærsluviðmið enn ekki séð dagsins ljós.

Ég segi í grein minni: Ef framkvæmd þessa máls strandar á Sjálfstæðisflokknum á að segja kjósendum frá því. Og ef Sjálfstæðisflokkurinn ætlar að hindra framkvæmd þessa eins mesta stefnumáls Samfylkingarinnar er best fyrir Samfylkingunni að slíta stjórnarsamstarfinu.

 

Björgvin Guðmundsson


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband