Ásmundur mótmælir kvótakerfinu í verki

Þyrla Landhelgisgæslunnar færði  Guðrúnu GK-313 til hafnar í Sandgerði en báturinn var staðinn að meintum ólöglegum veiðum um 20 sjómílur út frá Sandgerði.

Um er að ræða bát Ásmundar Jóhannssonar, sjómanns frá Sandgerði, en hann hefur undanfarnar vikur róið án þess að hafa veiðiheimildir og ekki farið leynt með það. Með þessu vill hann mótmæla kvótakerfinu og þeim mannréttindabrotum, sem hann telur felast í því.

Lögreglumenn tóku skýrslu af Ásmundi þegar hann kom til hafnar í kvöld. Fram kemur á fréttavef Víkurfrétta, að Ásmundur hafi verið með nokkur hundruð kíló af þorski og ufsa  og nokkra karfa, allt utan kvóta.( mbl.is)

Ásmundur segir,að kvótinn sé eign  þjóðarinnar og þess vegna eigi hann rétt á að veiða.Þeir,sem   séu

 

að selja kvóta séu að    höndla  með þýfi.Ásmundur er sönn  hetja.

 

Björgvin Guðmundsson


mbl.is Bátur á ólöglegum veiðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ásmundur er eflaust hinn vænsti maður, en það er engin hetjudáð að brjóta landslög.

Ómar Sigurðsson (IP-tala skráð) 17.7.2008 kl. 21:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband