Mallorka veður á Íslandi

Spáð er 22 stiga hita og sólskini á höfuðborgarsvæðinu í dag, samkvæmt vef Veðurstofunnar, en spáin fyrir Húsafell hljóðar upp á heilar 29 gráður og sól.

Strax á morgun gerir Veðurstofan ráð fyrir að heldur slái á hitann, og mega höfuðborgarbúar jafnvel búast við vætu á morgun.

Svipaða sögu er að segja af veðurspánni fyrir helgina, heldur minni hiti en vænta má í dag, og jafnvel væta víða um land.(mbl.is)

Þetta er sannkallað Mallorka veður.  Það er nóg fyrir landann að fara upp að Húsafelli.Það má spara sér Mallorka ferðina. Einnig má fara a Þingvöll en þar var 25 stiga hiti í gær og verður áreiðablega mjög gitt í dag.

 

Björgvin Guðmundsson


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband