Þriðjudagur, 26. ágúst 2008
Leiðrétting á lífeyri aldraðra ekki byrjuð
Nú hefur stjórnarsamvinna Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks staðið í 15 mánuði .Hverju hefur Samfylkingin komið fram? Það er ekki mikið.Sumir ráðherrar flokksins eru að vísu ansi röskir og hafa afgreitt mál vel.Ég er t.d. ánægður með orkulög Össurar..En lítið fer fyrir stórum stefnumálum jafnaðarmanna.Lítum á velferðarmálin. Dregið hefur verið úr tekjutengingum vegna lífeyris aldraðra og öryrkja.Og skerðing tryggingabóta vegna tekna maka hefur verið afnumin.En leiðrétting á lífeyri aldraðra og öryrkja hefur ekki hafist.Í stjórnartíð Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks dróst lífeyrir aldraðra mikið aftur úr launum annarra þjóðfélagshóp.Samfylkingin boðaði í kosningunum,að hún ætlaði að leiðrétta þetta.Sú leiðrétting hefur ekki byrjað þó flokkurinn hafi setið þennan tíma í ríkisstjórn.Ekki næst heldur að byggja öll þau hjúkrunarheimili á tilsettum tíma,sem gefið var fyrirheit um.Áætlun um 400 rými hefur þó verið samþykkt.Það hefurr verið unnið ágætt starf í öðrum velferðarmalim svo sem í þágu barna og ungmenna, í þágu geðfatlaðra. og fatlaðra.
Björgvin Guðmundsson
www.gudmundsson.net
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:18 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.