Þriðjudagur, 26. ágúst 2008
Jóhanna opnar nýjan þjónustuvef TR
Jóhanna Sigurðardóttir, félagsmálaráðherra, opnaði í dag formlega nýjan þjónustuvef Tryggingastofnunar en þar verður til að byrja með haldið utan um greiðsluyfirlit og tekjuáætlanir og bráðabirgðaútreikningar og einnig verður hægt að fá bráðabirgðaútreikning á netinu.
Jóhanna sagði að um væri að ræða gífurlega framför fyrir viðskiptavini, ekki síst að geta fengið tafarlausan bráðabirgðaútreikning á greiðslum stofnunarinnar til sín og áttað sig þannig á stöðu sinni hverju sinni. Með þessari þjónustu sigldi Tryggingastofnun ríkisins nú hraðbyrði inn í upplýsingaöldina, stórbætti og efldi þjónustu við viðskiptavini sína og gerði hana aðgengilegri.(mbl.is)´
Það er gott að Tryggingastofnun skuli tileinka sér nýjustu tölvutækni og veita viðskiptavinum aukna þjónustu.Vonandi hækka bætur í kjölfarið.
Björgvin Guðmundsson
Nýr þjónustuvefur Tryggingastofnunar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.