Sterkur leikur hjá McCain að velja unga og glæsilega konu

Óhætt er að segja að John McCain hafi komið með allóvænt útspil þegar hann lét berast út að að Sarah Palin, ríkisstjóri í Alaska, yrði varaforsetaefni sitt í forsetakosningunum í nóvember. Ýmsir hafa vafalaust spurt í forundran: Hver er Sarah Palin? og víst er að þeir sem reyndu fyrst eftir að fréttin barst út að heimsækja opinbera vefsíðu hennar urðu lítils vísari - hún hafði einfaldlega lagst á hliðina, slík hefur ásóknin verið.

Engu að síður má sjá á netinu að einhverjir hafa orðað þann möguleika að sniðugt gæti verið fyrir McCain að leita til þessarar stórhuggulegu og bráðrösku fimm barna móður sem stýrir þessu nyrsta ríki Bandaríkjanna og er yfirleitt ekki mikið til umræðu á þeim slóðum þar sem menn véla um völdin.

Þannig getur stjórnmálaskýrandinn, Jack Kelly, strax 4. júní sl, þess á netsíðunni Real Clear Politics að þegar leitað sé að varaforsetaefni eigi þeir sem athyglin beinist að fyrir ýmsa mannkosti, sér líka ýmsar dekkri hliðar sem geti verið tvíbentar þegar út í kosningabaráttuna er komið. Þó sé til eitt mögulegt varaforsetaefni sem eiginlega sé ekkert hægt að setja út á. Og þeir hægrimenn sem til hennar þekkja hafi orðið harla glaðir þegar fréttist að einn helsti aðstoðarmaður McCain,  Arthur Culvahouse, hafi einmitt gert sér ferð til Alaska nýverið, því að þeir gangi út frá því að hann hafi eingöngu verið þar til að ræða varaforsetamál við ríkisstjórann, Söruh Palin.

Sarah Louise Heath Palin er 44 ára að aldri, yngsti ríkisstjórinn í tiltölulega skammri sögu ríkisins og jafnframt fyrsta konan til að gegna því embætti. Hún er jafnframt vinsælasti ríkisstjórinn í Bandaríkjunum, þar sem  nærri 90% kjósenda lýsa yfir ánægju með hana..

Bakgrunnur Palin er um margt einstakur. Hún fluttist kornung með foreldrum sínum til Wasilla í Alaska þar sem faðir hennar bæði kenndi og þjálfaði í frjálsum íþróttum. Fjölskyldan er mikið íþrótta- og útivistarfólk og sagan segir að feðginin hafi stundum vaknað um miðja nótt til að fara á elgsveiðar áður en skóladagurinn byrjaði og að þau hafi hlaupið reglulega 5 og 10 km. hlaup.

 Hún byrjaði í bæjarstjórnarmálum heima fyrir í Wasilla en fór síðan að láta mikið til sín taka innan Repúblikanaflokksins í Alaska. Hún gerðist ákafur andstæðingur hvers kyns spillingar og lausataka í flokksstarfinu og á endanum skilaði það henni í ríkisstjórastólinn fyrir tveimur árum. Þar nýtur hún meiri hylli en nokkur annar ríkisstjóri í Bandaríkjunum, eins og áður er nefnt.

 Í Alaska hefur hún reynst aðhaldssöm í ríkisfjármálum, hún er ævifélagi í samtökum bandarískra byssueigenda enda mikil veiðikona, mjög trúuð sem hún ræktar með því að sækja kirkju reglulega og því harður andstæðingur fóstureyðinga. Þá var elsti sonur hennar, Ted sem er 18 ára, nýverið að skrá sig í herinn, og ekki fer það síður vel í hægra liðið sem aldrei hefur treyst McCain fullkomlega.

Sarah Palin hefur að minnsta kosti hitt einn Íslending svo vitað sé. Það er Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands. Þau hittust þegar Ólafur tók við umhverfisverðlaunum Norðurslóða sl. haust og hélt þá einmitt ræðu á fjölmennri alþjóðlegri ráðstefnu ásamt Söruh Palin ríkisstjóra Alaska, jafnframt sem hann átti fund með ýmsum áhrifamönnum Alaskaríkis um jarðhitanýtingu. Ekki er ólíklegt að Palin hafi verið þar í hópi.(mbl.is)

Ég tel,að það hafi verið sterkur leikur hjá McCain að velja  unga og glæsilega konu sem varaforsetaefni sitt. Honum hefur helst verið fundið það til foráttu,að hann væri nokkuð við aldur. Hins vegar er viðurkennt að hann er mikill reynslubolti. Sarah mun nú bæta Mc.Cain upp  og einnig verða gott mótvægi gegn Obama sem er ungur og glæsilegur  frambjóðandi en skortir ef til vill reynslu. Kosningarnar verða örugglega mjög spennandi.

 

Björgvin Guðmundsson


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband