Tímabært að stokka kvótakerfið upp

Viðskipti með kvóta hafa verið mjög lítil á því fiskveiðiári sem nú er að ljúka og verð hefur lækkað. Á það einkum við um varanlegar aflaheimildir, hvort sem það er í stóra eða  smáa kerfinu.Þau  litlu viðskipti sem eigi sér stað eru stunduð af bönkunum, sem eru að færa til skuldir á milli viðskiptavina sinna. Bankarnir hafi verið tregir til að lána fyrir viðskiptum með kvóta. Ekki er talið að þetta ástand muni eitthvað lagast á því fiskveiðiári sem gengur í garð á mánudag.

Verð á leigukvóta hefur hins vegar verið að hækka og viðskiptin eitthvað líflegri þó að þau séu langtum minni en áður tíðkaðist.

Arthur Bogason, formaður Landssambands smábátaeigenda, genr svo langt að segja að komandi fiskveiðiár verði smábátasjómönnum afar erfitt. Nú muni menn í fyrsta sinn finna verulega fyrir þeim kvótaskerðingum sem hafa átt sér stað. 

„Menn gátu aðeins deyft höggið með því að flytja aflaheimildir yfir á þetta fiskveiðiár, sem er að verða búið, en möguleikar til þess núna eru hverfandi. Ég óttast að fyrir marga eigi komandi fiskveiðiár eftir að verða mjög erfitt, og þarnæsta líka ef halda á þessari dauðans vitleysu áfram að halda þorskinum svona niðri,“ segir Arthur og telur hætt við að einhverjir neyðist jafnvel til að selja kvóta eða að bankar taki yfir báta þeirra og selji áfram.

„Menn eru lamaðir yfir því hvað bankarnir hafa verið tregir til að lána fyrir kvóta,“ segir hann.

Að sögn Reynis Þorsteinssonar, framkvæmdastjóra Kvótamarkaðarins, er ekki farið að bera mikið á gjaldþrotum í sjávarútvegi þó að einhverjir séu kannski að lenda í greiðsluvandræðum. Hann segir að hið sérstaka hafi gerst á fiskveiðiárinu, sem nú sé að ljúka, að seljandinn hafi tekið alla skerðinguna á sig. Aflaheimildir í þorski hafi verið skertar um 33% og verðið hafi lækkað sem því nemur.(mbl.is)

Það er tími til kominn að stokka kvótakerfið alveg upp eða að afnema það  með öllu og innleiða nýtt.

Ýmsar leiðir eru til. Fyrna má aflaheimildir á hæfilega löngum tíma og úthluta að nýju gegn gjaldi.Innnkalla má allar veiðiheimildir í einu lagi og úthluta á ný gegn gjaldi eða bjóða allar heimildir upp.Í þriðja lagi mætti afnema kvótakerfið að 'öllu leyti eða að hluta til og  taka upp sóknarkerfi að hluta eða öllu leyti.Óbreytt ástand gengur ekki lengur.

 

Björgvin Guðmundsson

 

 

Fara til baka 


mbl.is Nýtt fiskveiðiár mörgum erfitt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Þetta er virkilega fín færsla hjá þér Björgvin, ég gæti ekki verið meira sammála þér. Meðal þjóðarinnar er meirihluti fyrir að afnema kerfið sem var  byggt á ósanngirni, líffræðilega röngum forsendum og er nú gengið  sér til húðar. Verðum við þá ekki að spyrja okkur eftirfarandi: Hvaða flokkar eða stjórnmálamenn eru líklegir til að afnema kerfið?

Sigurður Þórðarson, 31.8.2008 kl. 07:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband