Mánudagur, 1. september 2008
Haustþing hefst á morgun
Alþingi kemur saman á morgun, 2. september, og lýkur störfum á hálfum mánuði. Er þetta í fyrsta sinn sem haldið er haustþing af þessu tagi og kláruð mál frá vorþinginu, en næsta löggjafarþing hefst síðan í byrjun október. Líklegt er að stjórnarfrumvörp um þróunarsamvinnu og sjúkratryggingar verði helstu viðfangsefni septemberþingsins en enn er óljóst hvað verður um skipulags- og mannvirkjafrumvörp þar sem einkum er tekist á um landskipulagstillögurnar.
Þingið stendur aðeins í tvær vikur, sjö reglulega þingfundardaga, og komast því ekki mörg þingmál á dagskrá af þeim sem ekki voru afgreidd í vor. Tvo af þessum sjö dögum flytja ráðherrar mikilvægar skýrslur og að auki verða utandagskrárumræður og fyrirspurnir þannig að mikið er komið undir samkomulagi milli þingflokka og innan stjórnarmeirihlutans
Forsætisráðherra flytur skýrslu um efnahagsmál við upphaf þingsins. Búast má við miklum umræðum um hana þar eð mikil óvissa rikir um efnahagsmálin og m0rgum finnst lítið gert í þeim málum.
Björgvin Guðmundsson
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.