Sunnudagur, 30. nóvember 2008
Geir ræðir einhliða upptöku evru eða dollars við Reuter
Geir H. Haarde, forsætisráðherra Íslands, segir í viðtali við Reuters fréttastofuna, að það sé óráðið hvort Íslendingar hafi áfram sinn eigin gjaldmiðil til lengri tíma litið eða hvort þeir tengi gjalmiðil sinn annað hvort við evruna eða Bandaríkjadollar. Þetta kemur fram á fréttavefnum Javno.
Haft er eftir Geir að efnahagsþregningarnar á Íslandi að undanförnu hafi undirstrikað þau vandamál sem því fylgi að halda úti sjálfstæðum gjaldmiðli í litlu, opnu hagkerfi.
Fólk er að skoða möguleikanan á tengingu við dollara eða einhliða upptökuevru sem myndi sennilega fá ýmsa innan Evrópusambandsins til að lyfta brúnum. Þriðji möguleikinn gæti verið gjaldeyrissamvinna. Þetta eru allt spurningar sem eftir á að svara.
Geir segir það þó vera forgangsverkefni núna að tryggja stöðugleika krónunnar. Við erum að ganga í gegn um viðkvæmt tímabil og það væri mjög hættuleg að missa gengið niður í eitthvað hyldýpi. Það er það sem við erum að reyna að komast hjá núna í þeirri vissu að núverandi gengi sé of lágt."(mbl.is)
Það eru nokkrar fréttir,að Geir ljái máls á einhliða upptöku evru eða dollars.Nokkrir þingmenn Sjálfstæðisflokksins eru á sömu skoðun.
Björgvin Guðmundsson
Allt opið í gjaldeyrismálum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 00:09 | Facebook
Athugasemdir
Gjaldeyrismál Íslands virðast koma Reuter eitthvað meira við en Íslendingum samkvæmt forsætisráðherra.
Geir virðist eitthvað vera að spila botninn úr brókunum. Virðing hans við landsmenn er engin. Hvað á Reuter að gera við krónuna?
Geir er að afhjúpa sig. Það mun ekki koma á óvart að do skrifi þá skýrslu.
nicejerk, 30.11.2008 kl. 03:25
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.