Hinn ískaldi raunveruleiki: Geðsjúkir koma að lokuðum dyrum

Það var enga hjálp að fá," segir Elisabet Sigurðardóttir móðir 27 ára manns sem svipti sig lífi í nóvember. Sökum plássleysis fékk hann ekki inni á geðdeild Landspítalans þegar hann leitaði þangað, þremur dögum áður en hann dó.

Sonur Elsubetar, Kristinn Ísfeld Andreasen, glímdi við þunglyndi. Hann gekk til geðlæknis til að vinna bug á veikindunum og vildi standa sig hvort sem um var að ræða föðurhlutverkið eða í vinnu segir móðir hans.(ruv.is)

Það er búið að tala mikið um það að bæta aðstöðu geðsjúkra,bæði barna og fullorðinna. En  hinn ískaldi raunveruleiki er sá,að sjúklingar koma að  lokuðum dyrum  eins og Elisabet Sigurðardóttir lýsir.Það er hörmulegt að heyra að ungi maðurinn,sonur hennar, skuli hafa svipt sig lífi vegna þess,að hann fékk ekki pláss á geðdeild.Hér er þörf úrbóta.

 

Björgvin Guðmundsson


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband