Forsetinn: Íslendingar eiga góð sóknarfæri

Góð skilyrði eru til þess að næsta haust verði sóknarskeið Íslendinga út úr kreppu hafið, sagði Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands við þingsetningu í dag. „Slíkt sóknarskeið síðari hluti næsta hausts er raunhæfur möguleiki," sagði Ólafur. Hann benti á að það væri verkefni Alþingis og þjóðarinnar allrar að gera þennan möguleika að veruleika.

Forsetinn sagði að undanfarið ár hefðu Íslendingar upplifað erfiðasta skeið í sögu þjóðarinnar sem hefði einkennst að miklu umróti. Margir erfiðir hjallar væru að baki en þeim hefðu fylgt þungbærar aðgerðir. Mörg heimili glímdu nú við atvinnuleysi, greiðsluþrot, eignamissi og tekjutap. Þó væru erfið mál óleyst og nefndi hann Icesave málið sem dæmi.

Forsetinn benti á að Íslendingar hefðu áður sigrast á erfiðleikum og voru landhelgisdeilan við Breta og þorskastríðin honum hugleikin. (visiri.is)

Ræða forseta Íslands var góð. Hann bles Íslendingum kjark í brjóst og sagði mikil sóknarfæri fyrir hendi.Hann kvaðst hafa hitt mikinn fjölda fólks erlendis,áhrifamenn í stjórnmálum,atvinnulífi og vísindum og fundið góðan anda og hlýhug til Íslands

 

Björgvin Guðmundsson


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband