Best að búa í Noregi 2007.Ísland í 3.sæti

Ísland er ofarlega á lista Sameinuðu þjóðanna yfir þau lönd þar sem lífsskilyrði eru best í heiminum.

Ísland vermir þriðja sæti listans sem birtur er í nýrri skýrslu þróunaráætlunar Sameinuðu þjóðanna. Í fyrsta og öðru sætinu eru hins vegar Noregur og Ástralía. Gögnunum, sem skýrslan er byggð á, var reyndar safnað árið 2007 svo útkoman gæti hæglega orðið önnur ef byggt væri á nýjum gögnum.

Það er þó engan veginn víst þar sem þættirnir, sem stuðst er við til að reikna lífsskilyrðin út, eru gæði menntunar, lífslíkur í viðkomandi landi og þjóðarframleiðsla. Töluverð gjá er á milli þróaðra og vanþróaðra ríkja í skýrslunni og flest ríkjanna sem aftast eru á listanum eru Afríkuríki þar sem menntunarstig er lágt og sjúkdómar á borð við eyðni ógna lífi milljóna, svo sem í Kongó, Niger og Chad.

Fimm ríki, Kína, Venesúela, Perú, Kólumbía og Frakkland, hækka sig um þrjú sæti eða meira frá því síðasta skýrsla kom út í fyrra og ráða þar auknar lífslíkur og hærri tekjur mestu. Meðallífslíkur Japana eru mestar, 82,7 ár en íbúar Niger mega ekki búast við að lifa lengur en 50 ár.(visir,is)

Spurning er hvort þetta hefur ekki gerbreytst á Íslandi í dag.Miðað er helst við  gæði menntunar,lífslíkur og þjóðarframleiðslu. Síðastnefnda atriðið er gerbreytt en hin atriðin gæði menntunar og lífslíkur kunna að vera óbreytt svo ekki er víst að Ísland hafi hrapað mikið niður þennan lista.

 

 

Björgvin Guðmundsson



 

 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband