Miðvikudagur, 7. október 2009
Þorvaldur Gylfason: Gætum lent í greiðslufalli
Þorvaldur Gylfason prófessor segir að þeir sem vilji sparka Alþjóðagjaldeyrirssjóðnum úr landinu séu að leika sér að eldinum. Við gætum vel þurft á láni AGS að halda til að forða því að Ísland lendi í greiðslufalli," segir Þorvaldur. Slíkt yrði mikil auðmýking fyrir landið og þjóðina."
Aðspurður um álit á þeim fréttum að meirihluti sé meðal þingmanna að hætta samstarfinu við AGS segir Þorvaldur að ógæfu Íslands verði allt að vopni þessa dagana. Þarna virðist vera einhver hugmyndafræðileg andúð á sjóðnum á ferðinni sem á ekkert skylt við röksemdir," segir hann.
Þorvaldur bendir á tvö önnur atriði sem fylgja örugglega í kjölfarið á því að AGS yrði látinn taka poka sinn á Íslandi. Í fyrsta lagi myndu lánsmatsfyrirtækin þrjú, Moody´s, Fitch Ratings og Standard & Poors, öll lækka lánshæfiseinkunnir sínar fyrir ríkissjóð niður í ruslflokk. Þar með væri tekið fyrir frekari lántökur erlendis frá til Íslands.
Það hefur skinið í gegnum málsflutning frá þessum matsfyrirtækjum undanfarið að vera AGS á Íslandi sé nær það eina sem heldur ríkissjóði enn í fjárfestingaflokki hvað lánshæfið varðar," segir Þorvaldur.
Þriðja atriðið sem Þorvaldur nefnir er að með brottför AGS yrði ekki vinnandi vegur að afnema gjaldeyrishöftin sem nú er í gildi. Þar að auki þyrftu þau höft að vera viðvarandi um langan tíma.
Björgvin Guðmundsson
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Takk fyrir kröftug skrif og góða pistla. Kær kveðja frá Finnlandi, Björgvin --
P.S. --Ég tek undir orð Þorvaldar Gylfasonar. Vonandi ræður skynsemin ferðinni hjá hinni íslensku þjóð, því lengi getur vont versnað ef ekki er haldið rétt á málunum.Björgvin Björgvinsson, 7.10.2009 kl. 18:49
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.