Eldri borgarar kæra til umboðsmanns alþingis

Landssamband eldri borgara ( LEB) hefur í bréfi til félags-og tryggingamálaráðherra krafist þess,að kjaraskerðing sú,sem eldri borgarar urðu fyrir 1.júlí sl. verði afturkölluð.Jafnframt hefur  LEB farið fram á það,að lífeyrir eldri borgara verði hækkaður til samræmis við  launahækkun verkafólks 1.júli sl.og 1.nóv n.k en verkafólk fær  jafnmikla kauphækkun 1.nóvember og það fékk 1.júlí. Ráðherra hefur ekki orðið við kröfum LEB. Hafa  samtökin nú kært málið til umboðsmanns alþingis.Þau telja það lögbundið að lífeyrir hækki í samræmi við breytingar á launum en auk þess styðst það við hefð að lífeyrir fylgi launabreytingum enda lífeyrir ekkert annað er laun eftirlaunafólks.

 

Björgvin Guðmundsson


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband