Auk þarf jöfnuð,bæta kjör aldraðra og öryrkja

Í mai sl. ,eftir þingkosningarnar skrifaði ég grein í Mbl. um nýju ríkisstjórnina.Þar sagði svo m.a.:

 Þau mál,sem  ríkisstjórn Samfylkingar og VG . þarf að vinna að eru þessi: Aukinn jöfnuður í þjóðfélaginu og útrýming fátæktar. Réttlát skattalöggjöf.Hækka þarf skatta á hátekjufólki og lækka  af lágum og meðaltekjum.Hækka þarf fjármagnstekjuskatt en jafnframt að ákveða að  vextir af   litlum sparnaði ( 3-5 millj.) verði skattfrjálsir. Gera þarf auknar ráðstafanir til þess að koma heimilunm  í gegnum kreppuna. Fella þarf strax niður hluta   húnsæðisskulda hjá þeim,sem rísa ekki undir að greiða af skuldum sínum..Reisa þarf atvinnulífið við. Bankarnir verði áfram að mestu leyti í eigu ríkisins. Til  álita kemur að einkaaðilar eignist hlut ( minnihluta) í bönkunum en ekki kemur til greina að einkavæða bankana á ný. Sporin hræða í því efni.Bæta  þarf kjör aldraðra og öryrkja. Afnema ber í áföngum skerðingu tryggingabóta vegn  tekna úr lífeyrissjóði. Hækka þarf frítekjumark vegna fjármagnstekna svo þær skerði ekki tryggingabætur jafnmikið og nú.Og síðast en ekki síst þarf að innkalla allar veiðiheimildir á 20 árum og úthluta þeim á ný á réttlátan hátt svo nýliðar komist  að í greininni og sjávarbyggðir út um land verði ekki afskiptar. Verkefnin eru næg.

 

Björgvin Guðmundsson

 

 



 
Vefstjórn

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband