Fimmtudagur, 22. október 2009
Ögmundur: ASÍ samþykkti kröfur AGS um niðurskurð á velferðarkerfinu
Ögmundur Jónasson þingmaður og fráfarandi formaður BRSB flutti mikjla ræðu á þingi BSRB í gær. Þar gagnrýndi hann forustu ASÍ fyrir að leggja blessun sína yfir kröfur AGS um stórfelldan niðurskurð í velferðarkerfinu. Hann lagði til,að lífeyrissjóðornir lánuðu til velferðarinnar svo ekki þyrfti að skera jafnmikið niður í velferðarmálum.
Mér hefur fundist undarlegt hvað ríkisstjórnin hefur verið fús til þess að skera niður í velferðarmálum t.d. í málefnum aldraðra og öryrkja. Ögmundur hefur ef til vill komið með skýringuna í gær: ASÍ samþykkti niðurskurðinn og þá stóð ekki á ráðherrum Samfylkingar. En ASÍ fékk kauphækkun fyrir sitt fólk á sama tíma og laun aldraðra og öryrkja voru skorin niður. Er þetta sæmandi "félagshyggjustjórn" .
Björgvin Guðmundsson
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 08:53 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.