1100 hafa svikið út atvinnuleysisbætur

Um ellefu hundruð manns hafa orðið uppvísir að því að svíkja út atvinnuleysisbætur síðustu tvo mánuði. Vinnumálastofnun hóf nýverið sérstakt eftirlit með slíkum svikum. Þetta kom fram í máli Gissurar Péturssonar, forstjóra Vinnumálastofnunar, á ársfundi stofnunarinnar í gær.

„Nú nýverið var sett á laggirnar sérstök eftirlitseining sem fer með úrvinnslu mála vegna svika á atvinnuleysisbótum, vinnustaðaeftirlit, móttöku og úrvinnslu nafnlausra ábendinga, rafrænar samkeyrslur við ýmsar opinberar skrár og fleira," sagði Gissur og bætti við að eftirlitsdeildin ætti jafnframt gott samstarf við Ríkisskattstjóra og fleiri opinberar stofnanir.

„Í eftirlitsdeildinni eru nú fjórir starfsmenn og starf þeirra er þegar farið að skila miklum árangri. Það hefur til dæmis þegar leitt til þess að um ellefu hundruð einstaklingar hafa verið teknir af skrá eða settir á 40 daga bið undanfarna tvo mánuði."

+Ávallt sækir einhver hluti til Vinnumálastofnunar á fölskum forsendum, að sögn Gissurar. Sumir uppfylli ekki skilyrði laga, leyni eða gefi rangar upplýsingar. „Það er svikið fé og mikils virði að ná til þessa fólks til að skapa trúverðugleika og samstöðu þeirra sem undir þessu framfærslu- og tryggingakerfi standa, sem er fólkið í landinu."

Í máli Gissurar kom fram að holskefla atvinnuleysis sem dundi yfir á árinu 2008, úr um einu prósenti fyrstu fimm mánuði ársins í 4,8 prósent í árslok, hafi kallað á töluvert aukið umfang starfsemi Vinnumálastofnunar, en starfsmönnum var fjölgað um 40 prósent á árinu. Starfsmenn hafi unnið sannkallað þrekvirki, en þeim var fjölgað úr 96 í 134. Þá var stofnuð sérstök skrifstofa í Borgartúni í Reykjavík til að þjónusta erlenda ríkisborgara. „Þar er nú til húsa EURES [innsk. evrópsk vinnumiðlun] skrifstofa okkar, en starfsemi hennar á árinu markaðist mjög af ástandinu í efnahagslífi þjóðarinnar.

Í opnunarávarpi Árna Páls Árnasonar, ráðherra félags- og tryggingamála, kom fram að nú þyrfti að breyta baráttunni við bráðavanda stóraukins atvinnuleysis í uppbyggingar- og sóknarstarf.

„Látum ekki hundruð eða þúsundir ungs fólks alast upp sem bótaþega. Það væru ömurlegar afleiðingar þessarar kreppu," sagði hann og kvað ráðuneytið á næstu vikum og mánuðum kynna hugmyndir til úrbóta. Þar á meðal væri að breyta bótagreiðslum í tímabundna náms- og virknistyrki. „Við ætlum einnig að auka þá kosti sem ungu fólki býðst til náms, sjálfboðastarfa og margra annarra verkefna." - (visir.is)

Þrátt fyrir aukið eftirlit með atvinnulausum og þeim,sem eru á bótum eru alltof margar veilur í kerfinu og of auðvelt  að fara kringum reglur.Þeir,sem eru atvinnulausir geta t.d. farið í atvinnurekndur sem þeir þekkja og látið þá skrifa upp á að þeim hafi verið synjað um vinnu. Auðvitað á það að ganga í gegnum Viunnumálastofnun þegar leitað er eftir vinnu og vinna fengin eða synjað um vinnu. Þá þarf að stórherða reglur um það að atvinnulausir geti synjað vinnu,sem er í boði. Mörg dæmi eru um það  að fólk fáist ekki til starfa þó mikill fjöldi sé á atvinnuleysiskrá í svipuðum störfum.Herða þarf reglur.

 

Björgvin Guðmundsson

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband