Evrópuþingið víkur að aðildarviðræðum við Ísland

Evrópuþingið samþykkti í dag ályktun um stækkunarmál sambandsins. Vikið er að Íslandi og lögð áhersla á að höfð skuli hliðsjón af því hvernig Íslendingar hafi framfylgt skuldbindingum sínum samkvæmt samningnum um Evrópska efnahagssvæðið þegar framkvæmdastjórn ESB taki ákvörðun um næstu skref í umsóknarferli Íslands.

Telur Evrópuþingið að Ísland geti innan tíðar orðið formlegur umsækjandi um aðild. Í ályktuninni er einnig vikið að mögulegri aðild Króatíu, Makedóníu og landa á vesturhluta Balkanskagans. Lögð er áhersla á umbætur í dómskerfinu í viðræðum við Tyrki en aðild þeirra var mjög umdeild í umræðum um ályktunina á Evrópuþinginu í gær.(ruv.is)

Ísland hefur framfylgt skuldbindinum sínum vegna aðildar að EES mjög vel.Til marks um það hefur ESB ákveðið að aðildarviðræður um þá þætti sem  heyra undir EES skuli fara fram á Íslandi. Það hefur ekki gerst áður að samningaviðræður færu  fram í  umsóknarríki og þykir þetta benda til þess að ESB sé ánægt með aðild Íslands að EES og framkvæmd skuldbindinga þar. 

 

Björgvin Guðmundsson


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband