Þriðjudagur, 19. febrúar 2008
Of lítið skref í skattamálum almennings
Ráðstafanir ríkisins
i skattamálum eru of litlar.
Björgvin Guðmundsson
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Þriðjudagur, 19. febrúar 2008
Eldri borgari í Noregi fær yfir 200 þúsund frá almannatryggingum
Hlustandi hringdi í Útvarp Sögu í morgun og sagði,að eldri borgari í Noregi fengi í lífeyri frá almannatryggingum þar landi yfir 200 þúsund á mánuði.En hér á landi fær eldri borgari aðeins 130 þúsund frá almannatryggingum,fyrir skatta,118 þúsund eftir skatta.Síðan fá menn í Noregi til viðbótar þessu lífeyri frá lífeyrissjóði,ef þeir eru í slíkum sjóði.Grunnlífeyrir í Noregi er yfir 60.000 á mánuði. Allir fá hann án nokkurrar skerðingar vegna tekna.
Björgvin Guðmundsson
í
Þriðjudagur, 19. febrúar 2008
Halda ber byggðakvótunum
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir formaður Samfylkingarinnar telur tímabært að endurskoða reglur um byggðakvóta. Hún vill kanna þann möguleika að selja veiðiheimildirnar á almennum markaði, andvirðið renni síðan til sjávarbyggða. Sérfræðingar telja hægt að fá um tvo milljarða króna árlega fyrir veiðiréttinn á almennum markaði.
Þingflokkur Samfylkingarinnar hefur setið á vinnufundi á Akureyri í dag, og rætt meðal annars sjávarútvegsmál. Samkvæmt reglum hefur sjávarútvegsráðherra heimild til að úthluta 12.000 tonnum af botnfiski til sveitarfélaga, sem einhverra hluta hafa lent í vanda vegna samdráttar í sjávarútvegi.
Samfylkingin mun hugsa þessa tillögu sem svar við úrskurði Mannréttindanefndar Sþ. um að kvótakerfið brjóti mannréttindi.Þessi tillaga dugar hvergi nærri til þess að svara gagnrýni Mannréttindanefndarinnar.Hún gengur alltof skammt en fagna ber því,að Samfylkingin sé að hugsa svar og hvað megi gera.Ef fara ætti þessa leið yrði að setja talsvert meira af þorski á uppboð um leið.Gretar Mar þingmaður telur að bjóða yrði upp a.m.k. 25-30% veiðiheimilda árlega eða jafnvel helming.
Ekki líst mér á að ráðist sé á byggðakvótana í þessu skyni. Þeir hafa reynst vel og voru settir á til stuðnings sjávarbyggðum
úti á landi.Það er unnt að taka ákveðið magn af veiðiheimildum og bjóða upp fyrir alla án þess að taka byggðakvótana af.Ég vil halda byggðakvótunum.
Björgvin Guðmundsson
Þriðjudagur, 19. febrúar 2008
Hækkun persónuafsláttar kostar mest
Ingibjörg Sólrún,formaður Samfylkingarinnar, var í kastljósi í gær og ræddi kjarasamningana og ráðstafanir ríkisstjórnarinnar.Hún sagði,að hækkun persónuafsláttar væri dýrasta aðgerð ríkisstjórnarinnar. Þess vegna yrði að dreifa þeirri aðgerð á langan tíma. Hún sagði hækkun persónuafsláttar um 7 þúsund kosta 14 milljarða.Það þýðir að fyrstu 2 þúsund krónurnar í hækkun persónuafsláttar kosta 4 milljarða.Víst eru þetta miklir peningar. En af þessu sést hvað mikið hefur verið haft af skattgreiðendum með því að láta ekki skattleysismörkin fylgja launavísitölu frá 1988. Ef það hefði verið gert væru skatttleysimörkin 145-150 þúsund á mánuði í dag í stað 95 þúsund á mánuði.
Björgvin Guðmundsson
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 18. febrúar 2008
Laun undir framfærslukostnaði
Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstrihreyfingarinnargræns framboðs, segir á vef flokksins að sú hugmyndafræði, sem lögð er til grundvallar nýgerðum kjarasamningum sé góð og nálgunin sé rétt: að reyna að hækka lægstu laun og umsamda kauptaxta sérstaklega.
Hins vegar segir hann,að enn sé verið að semja um laun langt undir framfærslukostnaði,í raun undir fátæktarmörkum.Það sé verið að hækka laun úr 119 þúsund á mánuði í 137 þúsund á mán.
Þá gagnrýnir Steingrímur ráðstafanir ríkisstjórnarinnar. Hann segir,að atvinnurekendur hafi forgang. Þeir eigi að fá skattalækkun í einu lagi strax. En almenningur eigi að fá lækkun persónuafsláttar í þrennu lagi á 3 árum. Eftir lækkun tekjuskatts atvinnurekenda í 15% verði sá skattur einn sá lægsti í Evrópu.
Björgvin Gu'mundsson
![]() |
Steingrímur segir laun enn langt undir framfærslukostnaði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Mánudagur, 18. febrúar 2008
Ríkið fær mikið af peningunum til baka
Ríkisstjórnin flaggar því,að ráðstafanir hennar muni kosta á 3 árum 20 milljarða. Hún segir ekki hvað þetta kosti mikið fyrsta árið en það hefði verið eðlilegt. En auk þess hefði verið eðlilegt að ríkisstjórnin hefði áætlað hvað ríkið fær mikið til baka í auknum skötttum vegna launahækkana.
Ólafur Einarsson nefnir í bloggi í dag dæmi um það hvað ríkið fær mikið til baka. Hann sýnir fram á að starfsmaður í ræstingu tapar upp undir helmingi af kauphækkuninni til ríkisins í auknum sköttum. Hann heldur aðeins rúmlega helming af 18000 kr. kauphækkun. Dæmi Ólafs sýnir,að hækkun persónuafsláttar er alltof lítil. Væntanlega leiðréttir alþingi hana.
Björgvin Guðmundsson
Mánudagur, 18. febrúar 2008
Flugvöllurinn verður að fara
Sú staðhæfing fulltrúa núverandi borgarstjórnar að ekki sé hægt að flytja flugvöllinn úr Vatnsmýri á kjörtímabilinu vegna veðurrannsókna stenst ekki, segir Örn Sigurðsson, stjórnarmaður Samtaka um betri byggð.
Ummæli þeirra Gísla Marteins Baldurssonar, Dags B. Eggertssonar og Hönnu Birnu Kristjánsdóttur í Kastljósinu í síðustu viku gáfu til kynna að ónóg gögn lægju fyrir um framtíð Reykjavíkurflugvallar, þar sem veðurathugunum á Hólmsheiði yrði ekki lokið á kjörtímabilinu. Þetta segir Örn ekki rétt. Eftirfarandi kemur fram í minnisblaði frá fundi samtakanna með borgarfulltrúum Sjálfstæðisflokksins 8. febrúar sl.:
Haraldur Ólafsson veðurfræðingur gerði grein fyrir því að reikna mætti vindafar og kviku yfir hugsanlegum flugvallarstæðum með töluverðri nákvæmni með tölvuhermun, sem byggir á tölvulíkani af landslagi, mælingum á veðurfari á viðkomandi stað og upplýsingum frá nálægum veðurathugunarstöðvum. Tölvuhermun tæki einungis nokkra mánuði og kostnaður væri minni en eins dags fórnarkostnaður af flugstarfsemi í Vatnsmýri.
Ummæli Haraldar Ólafssonar veðufræðiings benda til þess að unnt sé að gera nauðsynlegar veðurathuganir vegna nýs flugvallar á nokkrum mánuðum.Það þarf því ekki að tefja brottflutning flugvallarins um mörg ár af þeim ástæðum. Best er að flytja flugvöllinn sem fyrst. Það er ekkert vit í því að vera með millilandaflugvöll inn í miðri borg. Ég segi millilandaflugvöll vegna þess að millilandaflugvélar geta lent þar. Það er gífurleg slysahætta af flugvelli þarna og mjög gott svæði fyrir íbúðarbyggð er þarna ónotað.Nýja skipulagið sem kynnt hefur verið á flugvellinum lofar mjög góðu.
Björgvin Guðmundsson
l
![]() |
Vel hægt að ljúka innan árs |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Mánudagur, 18. febrúar 2008
30% hækkun á lægstu laun verkamanna
Við erum hér að vinna í takt við verkalýðshreyfinguna sem ég vil meina að sé að gera mjög merkilega kjarasamninga, sagði Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra eftir fund með fulltrúum SA og ASÍ í gær þar sem þeim voru formlega kynntar aðgerðir sem greiða fyrir gerð kjarasamninga. Spurð hvort aðgerðirnar væru fullnægjandi fyrir þá launþega sem fá litlar sem engar kjarabætur í þessum samningum sagði Ingibjörg: Þetta eru almennar aðgerðir sem koma til móts við allt launafólk sem greiðir skatta, á börn og greiðir af húsnæði. Við erum að koma til móts við mjög breiðan hóp með þessu og þetta er góð viðbót við almenna kjarasamninga.
Sigurður Bessason formmaður Eflingar segir,að félagsmenn Eflingar fái 30 % hækkun á lægstu taxta.Einnig fáist viðbótarorlofsdagar.Helstu vonbrigðin eru þau segir hann hve aðgerðir ríkisstjórnarinnar í skattamálum koma seint og að breytingar á vaxtabótum séu ekki meiri.
Ég fagna því að hinir lægst launuðu fá myndarlega kjarabót. En ég tel, hækkun persónuafsláttar alltof litla.Það vantar enn að leiðrétta skattleysismörk fyrir gömlu árin. Þau ættu nú að vera 150 þúsund á mánuði ef þau hefðu fylgt launavísitölu FRÁ 1988.Einnig er fyrsta skrefið alltof lítið,þ.e. 2000 króna hækkun persónuafsláttar 2009. Það er of lítið og of seint.
Björgvin Guðmundsson
![]() |
20 milljarðar í aðgerðirnar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Mánudagur, 18. febrúar 2008
Persónuafsláttur hækkar um 2 þúsund krónur fyrsta árið
Persónuafsláttur hækkar um 7.000 krónur umfram almenna verðuppfærslu á næstu þremur árum. a Skerðingarmörk barnabóta verða komin í 150.000 krónur að þremur árum liðnum. Þá mun ríkisstjórnin beita sér fyrir frekari aðgerðum til lækkunar vöruverðs og verður tekjuskattur á fyrirtæki lækkaður. Þetta er meðal þess sem kemur fram í átta liða skjali sem lýsir aðgerðum stjórnvalda vegna kjarasamninga.
Meðal annarra aðgerða sem gripið verður til eru hækkun húsaleigubóta, 35% hækkun eignaskerðingamarka vaxtabóta og hækkun atvinnuleysisbóta til samræmis við hækkun lægstu launa.
Persónuafsláttur hækkar aðeins um 2.000 kr. fyrsta árið, þ.e. árið 2009.En skattalækkun atvinnurekenda, þ.e. fyriirtækja kemur til framkvæmda öll í einu lagi, þ.,e, árið 2009 en þá lækkar skatturinn úr 18 % í 15%. Samkvæmt þessu virðist ríkisstjórnin leggja meiri áherslu á að lækka skatta fyrirtækja en almennings.Fólk finnur lítið fyrir því þó persónuafsláttur hækki um 2ooo krónur.
Það hefði þurft að hækka persónuafsláttinn mikið meira.
Björgvin Guðmundsson
![]() |
Stöðugleiki meginmarkmiðið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 00:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Sunnudagur, 17. febrúar 2008
Forustan herðir róðurinn gegn Vilhjálmi
Geir H. Haarde forsætisráðherra segist vonast til þess að framtíð Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar, formanns borgarráðs, ráðist í þessari viku. Hann segir mikilvægt að Vilhjálmur taki ákvörðun sem fyrst því að óvissan skapi erfiðleika. Í Silfri Egils í dag sagði Geir að hann myndi styðja Vilhjálm ef hann tæki þá ákvörðun að gefa kost á sér sem borgarstjóri eftir ár. Geir sagði hins vegar að ef Vilhjálmur myndi hætta sem oddviti væri eðlilegast að næsti borgarstjóri kæmi úr hópi borgarfulltrúa flokksins. Hann vildi þó ekki nefna hver hann teldi að það ætti að vera.
Ljóst er af þessum ummælum Geirs,að forusta íhaldsins herðir nú róðurinn gegn Vihjálmi. Það á að pína hann til þess að segja af sér sem oddviti og borgarstjóraefni flokksins.Hann fær ekki mikið ráðrúm til þess að hugsa sitt mál og athuga sinn gang. Illugi Gunnarsson og Bjarni Benediktsson létu svipuð ummmæli falla. Ekki verður séð,að mikið liggi á. ÍhALDIÐ á ekki að fá borgarstjórann fyrr en eftir rúmt ár. Það er engu líkara en að íhaldið hafi farið á taugum við skoðanakönnun heimur.is. En í henni rauk Samfylkingin langt upp fyrir íhaldið. En þó Vihjálmi verði sparkað til Kanada eða alveg út breytir það engu um fylgi íhaldsins. Hinir borgarfulltrúarnir bera jafnmikla ábyrgð á meirihlutanum með Ólafi og þvi að hann var keyptur með borgarstjórastólnum til fylgis við íhaldið.
Björgvin Guðmundsson.