Færsluflokkur: Bloggar
Miðvikudagur, 3. maí 2017
Lífeyrissjóðirnir:Stöðva verður "eignaupptökuna" strax!
Það verður að stöðva þegar í stað þessa "eignaupptöku".Ríkisvaldið verður strax að stöðva það,að Tryggingastofnun skerði lífeyri þeirra eldri borgara,sem fá lífeyri úr lífeyrissjóði.Sú ráðstöfun er ígildi eignaupptöku.Verði þetta ekki stöðvað getur orðið uppreisn gegn lífeyrissjóðskerfinu.Það er svo mikil óánægja í dag með þessar skerðingar,að það er rétt með naumindum,að launþegar fást til þess að greiða iðgjöldin í lífeyrissjóðina.Launþegum finnst eins og það sé verið að blekkja þá; það sé verið að plata þá.Inn í þetta blandast óánægja með stjórnarfyrirkomulag lífeyrissjóðina en sjóðfélagar,launþegar,kjósa ekki stjórnarmenn í lífeyrissjóðunum beinni kosningu heldur eru það ASI og SA sem tilnefna eða kjósa stjórnarmenn. Það er fráleitt fyrirkomulag og því verður að breyta.- Það er gífurleg óánægja meðal sjóðfélaga í lífeyrissjóðunum og ef ekki verður brugðist við getur illa farið.-Kjarnapunktur í þessu máli er,að þegar lífeyrissjóðirnr voru stofnaðir var yfirlýst,að þeir ættu að vera viðbót við almannatryggingar.Þeir áttu ekki að valda neinni skerðingu.
Björgvin Guðmundsson
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 2. maí 2017
"Landspítalinn undirmannaður og undirfjármagnaður"
Landspítalinn er undirmannaður og undirfjármagnaður.Forsætisráherra segir hins vegar,að ekki verði látnir meiri nýir peningar í Landspítalann í ár.Hvað þýðir það? Jú,það þýðir það,að fara verður í stórfelldan niðurskurð í rekstri Landspítalans. Það þarf að skera niður um 5- 10 milljarða í rekstrinum.Það verður því að skera niður þjónustu og jafnvel vísa frá sjúklingum sem leita til spitalans.
Landlæknir var í viðtali á Hringbraut og þá kom mat hans á stöðu Landspítalans fram.Hann endurtók það,sem hann hefur sagt áður um Klinikina við Ármúla en landlæknir hefur bent á,að vegna samnings sérfræðilækna við Sjúkratryggingar sé unnt að reka Klinikina án leyfis ráðherra og engin takmörk séu á því hvað Sjúkratryggingar greiði háa reikninga fyrir Klinikina.Það er nokkurs konar sjálfsafgreiðsla.Landlæknir hefur bent á,að með þessu fyrirkomulagi sé engin leið að hafa stjórn á hve einkarekstur eða opinber rekstur sé mikill í heilbrigðiskerfinu.Táknrænt er,að útgjöld Sjúkratrygginga hafa aukist um 40% á sama tima og útgjöld Landspítalans hafa dregist saman.
Björgvin Guðmundsson
Bloggar | Breytt s.d. kl. 07:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 1. maí 2017
Stjórnvöld láta sér ekki nægja að hindra kjarabætur aldraðra og öryrkja heldur no ta hvert tækiflri til þess að skerða kjör þeirra
Stjórnvöld standa gegn öllum raunverulegum kjarabótum aldraðra og öryrkja.En þau láta sér það ekki nægja heldur nota hvert tækifæri til þess að skerða kjör þeirra.Eitt nýjasta dæmið er þetta:Sumir öryrkjar og aldraðir hafa fengið húsnæðisbætur.Þær eru tekjutengdar;þ.e. það fer eftir tekjum viðkomandi hvort hann fær þessar bætur.Við útreikning á húsnæðisbótunum og viðmiðunartekjunum hefur lífeyrir öryrkja og aldraðra frá almannatryggingum ekki verið reiknaður með tekjum. En um síðustu áramótum varð breyting þar á.Frá þeim tíma eru allar tekjur öryrkja og aldraðra frá almannatryggingum reiknaðar sem tekjur við útreikning húsnæðisbóta. Þetta þýðir mikla kjaraskerðingu öryrkja og aldraðra og var nú ekki á bætandi.Hvað rak ríkisstjórn til þess að skerða húsnæðisbætur aldraðra og öryrkja? Var það góðærið!
Björgvin Guðmundsson
Bloggar | Breytt s.d. kl. 06:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 30. apríl 2017
Tunguliprir stjórnmálamenn!
Benedikt Jóhannesson formaður Viðreisnar er mjög tungulipur maður. Í kosningabaráttunni talaði han eins og hann vildi hvers manns vanda leysa.Hann var alltaf með sakleysissvip eins og heiðarleikinn uppmálaður.Ekki vantaði falleg stefnumál: Eitt stærsta stefnumál hans var að stórbæta heilbrigðiskerfið.Annað var að fara ætti fram þjóðaratkvæðagreiðsla um aðildarviðræður að Evrópusambandinu og þriðja stefnumál Benedikts var að taka tengja ætti krónuna við erlenda mynt gegnum myntráð.Síðan talaði Benedikt tungulipur um það, að aldraðir ættu að á fá að vinna eins lengi og þeir vildu og hann talaði fallega um öryrkja og aldraða. En hvað hefur Benedikt gert í framangreindum málum: Ekkert! Það er ekki verið að efla heilbrigðiskerfið,heldur þarf að skera þar niður.Þjóðaratkvæðagreiðslunni um ESB var sópað út af borðinu. Ekkert myntráð verður skipað enda Sjálfstæðiflokkurinn á móti því að hrófla við krónunni. Hins vegar var ákveðið að skipa einhverja nefnd sem á að athuga gengis- og myntmál.Reyndar var það mál athugað af Seðlabankanum 2012 og liggur því fyrir skýrsla um málið.Stefnumál Benedikts um að greiða ætti fyrir lengri atvinnuþátttöku aldraðra var svikið.Í staðinn var þrengt að eldri borgurum í þessu efni með því að lækka frítekjumark vegna atvinnutekna aldraðra úr 109 þús kr á mánuði í 25 þús kr á mánuði! Það lokaði algerlega fyrir að fjöldi eldri borgara,sem var á vinnumarkaðnum, héldi þar áfram.Blíðmælgi Benedikts fyrir kosningar um hag aldraðra og öryrkja reyndist innihaldslaust orðagjálfur. Benedikt hefur ekki sem fjármálaráðherra látið neina fjármuni í bætt kjör aldraðra og öryrkja.Hins vegar á hann aðild að því að ákveða gegnum rikisfjármálaáætlun,að halda kjörum aldraðra og öryrkja niðri fram til 2022.Gegnum þessa áætlun á að tryggja að lífeyrir aldrara og hækki ekki eins mikið og laun verkafólks; þar sjást handamerki Bjarna Benediktssonar.Þeir ætla að hjálpast að við það frændurnr að halda kjörum aldraðra og öryrkja við fátæktarmörk fram til 2022.(Þeirra,sem eingöngu hafa tekjur frá TR).Það er ekki nóg að vera tungulipur og með sakleysissvip.Það dugar ekki kjósendum.Þeir vilja,að staðið sé við kosningaloforðin.
Mér virðist,að Þorsteinn Vígundsson,nýr félagsmálaráðherra,úr Viðreisn sé að mörgu leyti sama marki brenndur og Benedikt.Maður opnar ekki svo sjónvarp eða dagblað, að Þorsteinn blasi ekki við..Og hann kjafar og kjaftar stanslaust um, að hann ætli að gera hitt og þetta en hann gerir ekki neitt.Hann talar fallega eins og Benedikt en það er engin innistæða fyrir því,sem hann segir. Ellert B.Schram formaður FEB fór á hans fund eftir að hafa beðið í 2 vikur.Ellert hélt að hann gæti rætt við félagsmálaráðherrann um öll brýnustu mál eldri borgara en svo var ekki. Hann ljáði ekki máls á að ræða neitt nema frítekjumark vegna atvinnutekna.Og " umræðan" þar var eintal ráðherra.Hann tilkynnti Ellert,að hann væri með lausn á því máli: Málið yrði lagað á 4 árum! Ellert varð dolfallinn og varð fyrir miklum vonbrigðum.Ekkert gagn er í þessu fúski fyrir eldri borgara,sem vilja vinna.Sumir þeirra verða fallnir frá fyrir lok timabilsins og öðrum finnst ekki taka því að vinna þegar svona er staðið að málum.Ef einhver dugur hefði verið í félagsmálaráðherra hefði hann leiðrétt fritekjumarkið með einu pennastriki strax. En Bjarni leyfir það ekki.Þessi tungulipri ráðherra ætti því að skipta um línu og segja eins og er, að hann geti ekki gert hlutina í stað þess að lofa upp i ermina á sér og tala eins og hann geti gert alla hluti.Það gildir það sama um Þorstein og Benedikt.Það er ekki nóg að vera tungulipur.Það þarf að gera eitthvað og standa við stóru orðin.
Björgvin Guðmundsson
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Sunnudagur, 30. apríl 2017
Stanslaus kjaraskerðing aldraðra frá 1995!
Stjórnvöld tóku að skerða kjör aldraðra 1995,þegar sjálfvirk tengsl milli lægstu launa og lífeyris almannatrygginga til eldri borgara voru rofin.Síðan hefur lífeyrir aldraðra frá TR stöðugt dregist aftur úr í almennri kjaraþróun.Aldrei hefur fengist nein fullnægjand skýring á því hvers vegna þetta var gert 1995 nema það,að þáverandi forsætisráðherra sagði,að breytingin yrði til hagsbóta fyrir eldri borgara; þeir yrðu betur settir eftr breytinguna.Ég tel,að þetta hafi verið gert í sparnaðarskyni fyrir ríkið.Eitt er víst,að kjör aldraðra versnuðu eftir breytinguna en staða ríkissjós batnaði talsvert,að hluta til á kostnað aldrara og öryrkja.
Miðað við yfirlýsingu forsætisráðherra 1995 um að breytingin ætti ekki að skaða aldraða heldur þvert á móti er eðlilegt að ríkið bæti öldruðum þá kjaraskerðingu sem þeir hafa orðið fyrir frá 1995.Það eru margir tugir milljarða.Að mestu leyti gildir það sama um öryrkja og aldraða frá 1995.Kjaraskerðingin hefur lent á þeim til jafns við aldraða. Þess vegna eiga þeir einnig að fá kjaraleiðréttingu frá 1995.
Björgvin Guðmundsson
Bloggar | Breytt s.d. kl. 06:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 29. apríl 2017
Ríkisstjórnin ætlar að halda kjörum öryrkja niðri!
Samkvæmt fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar fram til 2022 ætlar rikisstjórnin ekkert að bæta kjör öryrkja á þessu tímabili.Það á áfram að halda kjörum öryrkja niðri þannig að þeir geti ekki lifað mannsæmandi lífi af lífeyrinum,sem þeir fá. Og það sama gildir um aldraða.Stjórn Öryrkjabandalagsins mótmælir þessu harðlega.Aðeins er gert ráð fyrir 3-4% hækkun,sem er undir meðaltalshækkun launa en laun hækkuðu um 5% sl ár.Lífeyrir aldraðra og öryrkja hefur dregist aftur úr úr í launaþróuninni og ætti að hækka meira en laun en ekki öfugt.
Björgvin Guðmundsson
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 28. apríl 2017
Framlög til þróunarsamvinnu ekki meiri en í kreppunni!
Þrátt fyrir góðæri veitir Ísland ekki meira fé til þróunarsamvinnu (þróunarríkja) en gerðist á kreppuárunum.Framlagið er það sama í ár og var 2011 eða 0,2% en samkvæmt alþjóðlegum skuldbindinum á það að vera 0,7%.Gerð var athugasemd við þetta á alþingi ( Rósa Björk VG) og bent á,að það væri verið að draga úr framlögunum miðað við það sem sem síðasta ríkisstjórn gerði.-Skýring: Góðæri í landinu!
Björgvin Guðmundsson
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 27. apríl 2017
Stuðla þarf að þvi, að kvótar haldist í heimabyggð!
Kvótakerfið í sjávarútvegi hefur farið mjög illla með mörg byggðarlög landsins.Þar sem voru öflug útgerðarfyrirtæki með sterka kvóta er nú víða sviðin jörð eftir að útgerðarfyrirtækin hurfu á braut,þar eð einhver stærri og fjársterkari útgerðarfyrirtæki höfðu keypt þau upp til þess að ná í kvótana.
Margoft hefur því verið lofað, að kvótarnir (útgerðin) héldust á staðnum þó einhver önnur útgerðarfyirtæki væri að kaupa þau.En jafnoft hefur það verið svikið.Nú er nýtt slíkt dæmi í umræðunni: Grandi,sem rekið hefur umfangsmikla fiskvinnslu á Akranesi,eftir að Grandi keypti HB á Akranesi vill nú flytja vinnsluna til Reykjavíkur og svipta 100 manns á Akranesi vinnunni.Meira að segja tveimur þingmönnum Sjálfstæðisflokksins ofbýður þetta þ.e. Haraldi Benediktssyni formanni fjárlaganefndar og Páli Magnússyni formanni atvinnuveganefndar.Báðir hafa þeir nefnt þann möguleika að skilyrða þyrfti kvótaúthlutanir til þess að handhafar kvótanna,útgerðirnar,gætu ekki farið á brott með kvótana eða vinnsluna og skilið eftir auða jörð.Mér finnst það mjög athyglisvert, að þessi skoðun skuli heyrast frá 2 þingmönnum Sjálfstæðisflokksins.Ég minnist þess ekki,að slíkar raddir hafi heyrst áður frá Sjálfstæðisflokknum.Algengast hefur verið, að Sjálfstæðisflokkurinn reyndi að berja niður alla gagnrýnu á kvótakerfið.
Ég tel það sem er að gerast á Akranesi sýni,að nauðsynlegt er að gera strax breytingu á lögunum um stjórn fiskveiða og setja í lögin skilyrði fyrir veitiingu kvóta,sem komi í veg fyrir að stórar útgerðir kaupi upp minni útgerðir til þess að ná í kvótana og fari síðan á brott með allt saman.Það getur verið erfitt að setja lagabreytingu,sem dugar i þessu efni. En það verður að gera það.
Björgvin Guðmundsson
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Þriðjudagur, 25. apríl 2017
Allir innviðir samfélagsins í svelti þrátt fyrir góðæri!
Fyrir síðustu þingkosningar sögðust allir flokkar vilja efla innviði samfélagsins.Allir flokkar vildu í orði efla heilbrigðiskerfið og nær allir flokkar vildu einnig efla skólakerfið og vegakerfið enda hvort tveggja í miklu svelti.Viðreisn og Björt framtíð sögðust auk þess bera hag aldraðra og öryrkja fyrir brjósti.Sjálfstæðisflokkur,Viðreisn og Björt framtíð komust til valda. En hverjar urðu efndir kosningaloforðanna. Í stuttu máli sagt: Allt var svikið.Viðreisn og Björt framtíð höfðu gleymt öldruðum og öryrkjum strax eftir kosningar.Það er eins og Jónas Krisjánsson sagði: Viðreisn og Björt framtíð lugu sig inn á þjóðina!
Ég hef þegar skýrt frá því hvernig skorið hefur verið niður og verður skorið niður í heilbrigðiskerfinu.Skorið er einnig niður í háskólanum og í framhaldsskólunum.Því hafði verið lofað,að sparnaður af styttingu námstíma i skólunum mundi ganga inn í skólakerfið en það er svikið og ríkishítin hirðir peningana.Alþingi samþykkti í fyrra,rétt fyrir þinglok,framsækna samgönguáætlun. Hún var skorin niður við trog en nokkrar krónur látnar til baka vegna mikilla mótmæla.Það er sama hvar borið er niður. Það er alls staðar niðurskurður eða fjársvelti.Það er eins og það sé kreppa i þjóðfélaginu.
Björgvin Guðmundsson
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 25. apríl 2017
Heilbrigðismálin í forgangi!: Rekstur Landspítalans skorinn niður um 5,2 milljarða!
Ársfundur Landspítalans var haldinn í gær.Þar kom fram,að það vantar 5,2 milljarða í rekstur spítalans.Bjarni Ben. hefur ákveðið án samráðs við þing eða stjórn að spítalinn fái ekki einni krónu meira í reksturinn.( Það er vegna þess,að heilbrigðismálin eru í forgangi!) Erfitt er að sjá hvað Bjarna gengur til með því svelta Landspítalann.Sennilega er meiningin sú að skapa öngþveiti í rekstri Landspítalans til þess að leiðin til einkavæðingar i heilbrigðiskerfinu verði greið.
86 þúsund Íslendingar skrifuðu undir áskorun á sl.ári um, að heilbrigðiskerfið hér ætti að standa jafnfætis hinum Norðurlöndunum.Bjarni og ríkisstjórnin hundsa vilja þjóðarinnar.Hvað varðar þessa menn um það hvað þjóðin vill.
Björgvin Guðmundsson
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)