Færsluflokkur: Bloggar
Laugardagur, 18. febrúar 2017
Skattamál: Eiga sömu reglur að gilda fyrir ráðherra og sjómenn?
Sjómannadeilan er leyst.Hún leystist án aðkomu ríkisstjórnarinnar.Sjómönnum og útgerðarmönnum tókst að ná samkomulagi án aðkomu ríkisins.Það var gott.Mér skilst, að útgerðarmenn hafi ákveðið að veita sjómönnum frítt fæði.Í þessari deilu gerðist það,að ráðherrar gengu fram fyrir skjöldu,börðu sér á brjóst og sögðu,að allir yrðu að sitja við sama borð í skattalegu tilliti.Ekki gengi að setja sértækar reglur fyrir sjómenn um skattfrjálsa dagpeninga! ( ríkisstarfsmenn,flugmenn og fleiri hafa að vísu skattfrjálsa dagpeninga)Og Páll Magnússon,alþingismaður upplýsti,að ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknar hefði boðið sjómönnm skattfrjálsa dagpeninga í fyrra.En það var önnur ríkisstjórn.Þá var Bjarni fjármálaráðherra.Nú er hann forsætisráðherra!
Það er gott og blessað,að ráðherrar gangi fram og brýni fyrir landsmönnum,að sömu skattareglur eigi að gilda fyrir alla landsmenn og ekki gangi að setja sértækar reglur fyrr sjómenn. En væri þá ekki rétt að þeir litu í eigin barm og byrjuðu á,að afnema sérreglur sem gilda fyrir þá sjálfa? Ráðherrar hafa skattfrjálsa dagpeninga.Aðrir ríkisstarfsmenn þurfa að nota dagpeningana til þess að greiða fæðis, gistikostnað og allan annan kostnað í ferðum erlendis og innan lands.En ekki ráðherrarnir.Það voru settar sértækar reglur fyrir þá.Þeir fá dagpeninga en jafnframt fá þeir greiddan sérstaklega gistikostnað og risnu.Þetta eru m.ö.o skattfrjáls viðbótarhlunnindi.Eru laun þeirra það lág,að þeir þurfi á þessu að halda. Ég held ekki: Laun þeirra hækkuðu um 35% á síðasta ári þegar þeir ákváðu,að aldraðir og öryrkjar skyldu aðeins fá 7,5% hækkun.Laun ráðherra hækkuðu þá sem hér segir:Forsætisráðherra fór í rúmar 2 milljónir á mánuði.Aðrir ráðherrar í 1,8 milljónir á mánuði.Ættu þeir ekki að geta greitt gistikostnað erlendis af þessum launum eins og annað fólk.Hafa þeir efni á að setja sig á háan hest gagnvart sjómönnum? Ég held ekki. Þeir ættu að taka til heima hjá sér fyrst.
Björgvin Guðmundsson
Bloggar | Breytt s.d. kl. 09:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Laugardagur, 18. febrúar 2017
Lífeyrir aldraðra á að vera skattfrjáls!
Ég hef barist fyrir því,að lífeyrir aldraðra væri skattfrjáls.Þetta er svo lág upphæð,að það er út í hött,að ríkið sé að klípa af þessu í formi skattlagningar.Hér er ég að tala um þá,sem eingöngu hafa lífeyri frá TR.Einnig hef ég barist gegn því,að það sé verið að refsa eldri borgurum fyrir að vinna með því að skerða lífeyri þeirra hjá almannatryggingum vegna atvinnutekna.
Það er því ánægjulegt,að nýr formaður Félags eldri borgara í Reykjavík,Ellert B. Schram,skuli taka undir þessar kröfur.
Hann segist þeirrar skoðunar
- að það eigi ekki að gilda neinar takmarkanir á því
- hversu mikla peninga eldri borgarar sem eru á vinnumarkaði vinni sér inn.
- og þeir sem hafa lægstu eftirlaunin frá Tryggingastofnun
- eiga ekki að borga af þeim skatt, segir hann.
Þetta er svo lág upphæð.
Varðandi viðbótartekjur sem eldri borgarar vinna sér inn,
- telur Ellert eðlilegt að þeir greiði af þeim skatt,
- á sama hátt og aðrir sem vinna fyrir viðbótartekjum.
Björgvin Guðmundsson
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 16. febrúar 2017
Dagpeningar:Ráðherrar fá ekki aðeins fulla dagpeninga heldur einnig greiddan gistikostnað sérstaklega!
Miklar umræður eiga sér nú stað um fæðis-og dagpeningagreiðslur til sjómanna. Talið er,að samkomulag um slíkar greiðslur gæti leyst sjómannadeiluna.Ýmsar stéttir,sem þurfa að sækja vinnu fjarri heimilum sinum eða fara á fundi erledis fjarri heimili sínu geta fengið dagpeninga.Einnig er algengt að greiddir séu fæðispeningar. Allar þessar greiðslur eru skattfrjálsar.
Nú ber svo við,að spekingar segja,að störf sjómanna fjarri heimilum sínum séu allt annars eðlis en störf ríkisstarfsmanna,flugmanna og annarra sem vinna fjarri heimilum sínum. Ríkisstarfsmenn,flugmenn og fleiri fari í tilfallandi ferðir en sjómenn ekki. Skipið sé þeirra starfsstöð.Og aðeins þeir sem fari i tilfallandi ferðir eigi að fá skattfrjálsa dagpeninga. Ég kalla þetta hundalógik. Dagpeningar eiga yfirleitt að vera fyrir kostnaði eins og mat og gistkostnaði í ferðalögum fjarri heimili.Ráðherrar láta sér þó ekki duga að fá dagpeninga í ferðalögum erlendis heldur fá þeir einnig greiddan gistikostnað sérstaklega,risnukostnað og símtöl.Það er því ekki aðeins ein regla i gildi heldur fleiri og auðvelt fyrir ráðherra að ákveða að fæðispeningar eða dagpeningar sjómanna vegna fæðis skuli vera skattfrjálsir.Þetta er aðeins spurning um vilja.
Björgvin Guðmundsson
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 16. febrúar 2017
Góðærið hefur ekki komið til eldri borgara og öryrkja!
Hvað þarf eldri borgari mikið sér til framfærslu? Í dag hefur sá sem þarf að treysta eingöngu á almannatryggingar, 197 þúsund krónur á mánuði eftir skatt.(Þeir,sem eru í hjónabandi eða sambúð).Þetta er ekki prenvilla.Lífeyrir þessa fólks nær ekki 200 þúsund kr á mánuði eftir skatt á sama tíma og sagt er ,að góðæri sé á Íslandi og meðaltekjur í þjóðférlaginu eru 620 þúsund krónur á mánuði fyrir skatt.
Miklar launahækkanir sl. 2 ár
Undanfarin 2 ár hafa orðið gifurlega miklar launahækkanir í landinu.Launafólk,faglært og ófaglært, hefur fengið hækkanir á bilinu 14,5-55%.Alþingismenn fengu 55% launahækkun á síðasta ári,ráðherrar fengu 44% hækkun og æðstu embættismenn fengu allt að 48% hækkun á síðasta ári,sem gilti afturvirkt í 18 mánuði! Á meðan þessar miklu hækkanir áttu sér stað voru aldraðir og öryrkjar skildir eftir.Þeir fengu mjög litla hækkun á lífeyri sínum.Um áramótin fengu þeir eldri borgarar,sem nú hafa 197 þúsund krónur á mánuði 12 þúsund króna hækkun á mánuði.Það voru öll ósköpin.
Lífeyrir dugar ekki fyrir öllum útgjöldum
Það er engin leið að lifa sómasamlegu lífi af 197 þúsund krónum á mánuði.Húsaleiga hefur stórhækkað svo og allur húsnæðiskostnaður.Algeng húsaleiga fyrir 2ja-3ja herbergja íbúð er í dag 130-200 þúsund kr á mánuði. Þegar búið er að borga húsaleigu,rafmagn og hita er lítið eftir fyrir öllum öðrum útgjöldum,mat,fatnaði,hreinlætisvörum,síma,sjónvarpi og rekstri tölvu. Erfitt eða ókeift er að reka bíl af þessum lága lífeyri.Ef ekki er um bíl að ræða þarf að borga í strætisvagnagjöld eða annan samgöngukostnað. Lífeyrir er svo naumt skammtaður til aldraðra, að algengt er, að hann dugi ekki fyrir öllum brýnustu útgjöldum.Læknishjálp og lyf verða oftast útundan og stundum matur.Slík meðferð á öldruðum er að sjálfsögðu brot á stjórnarskránni, brot á mannréttindum.
Naumt skammtað til aldraðra
Hvernig stendur á því,að velferðarlandið Ísland skammtar eldri borgurum svo nauman lífeyri og hér hefur verið lýst? Það er óskiljanlegt.Ráðamenn tala mikið um það, að efnahagsmálin séu í góðu lag ; góðæri sé mikið. En góðærið hefur alveg farið framhjá eldri borgurum.Lífeyrir á ekki aðeins að duga fyrir brýnustu nauðsynjum; lífeyrir á að duga til þess að aldraðir geti lifað með reisn þetta síðasta skeið ævi sinnar.Þeir þurfa að geta veitt sér eitthvað og gefið barnabörnum sínum jólagjafir og afmælisgjafir.
Lyfta þarf kjörum aldraðra myndarlega!
Það hefur verið reiknað út, að hin Norðurlöndin verji um það vil 100 milljörðum meira á ári til eldri borgara,öryrkja og velferðarkerfisins í heild en gert er hér á landi.Þó er hagvöxtur meiri hér en þar og hefur verið um skeið og Ísland er ekki síður ríkt en hin Norðurlöndin, ef til vill ríkara.Hvers vegna eru kjör aldraðra og öryrkja þá svo miklu verri hér en á hinum Norðurlöndunum.Ég tel,að að sé vegna skilningsleysis íslenska stjórnmálamanna á vanda eldri borgara og öryrkja á Íslandi.Hér þarf að verða breyting á .Það er kominn tími til þess að lyfta kjörum aldraðra og öryrkja myndarlega upp. Ég tel,að lágark fyrir eldri borgara og öryrkja sé 400 þúsund á mánuði fyrir skatt,305 þúsund eftir skatt.Það er engin leið að lifa sómasamlegu lífi af lægri upphæð.
Björgvin Guðmundsson
fyrrverandi borgarfulltrúi
Birt í Mbl. 16.feb.2017
www.gudmundsson.net
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 15. febrúar 2017
Skerðingar: Hvað skuldar ríkið eldri borgurum mikið?
Gífurleg viðbrögð hafa verið við grein minni á Facebook um, að málsókn gegn ríkinu væri í undirbúningi vegna skerðinga á tryggingalífeyri þeirra,sem fengju lífeyri úr lífeyrissjóðum.Eldri borgarar og sjóðfélagar í lífeyrissjóðum hafa mikinn áhuga á þessu máli.Flestir eru mjög hlynntir því, að málsókn sé undirbúin en einn og einn vill að kannað verði fyrst hvort stjórnvöld fáist til þess að láta af skerðingum tryggingalífeyris án málaferla.
Eru málaferli óþörf?
Eldri borgarar hafa barist fyrir því árum saman, að dregið væri verulega úr skerðingum tryggingalífeyris vegna lífeyrissjóða eða skerðingin afnumin með öllu, sem aldraðir vilja helst.En allt hefur komið fyrir ekki. Eldri borgarar hafa í þessu máli talað fyrir daufum eyrum.Dregið var lítils háttar úr skerðingum um síðustu áramót en um leið var aukin skerðing vegna atvinnutekna.Nú er krafan ekki lengur sú að draga eigi úr skerðingum, heldur að afnema eigi skerðingar.
Mál þetta kom upp í kosningabaráttunni fyrir alþingiskosningarnar síðasta haust .Þá fór Tryggingastofnun strax að reikna út hvað það mundi kosta stofnunina að afnema skerðingar vegna greiðslna lífeyris úr lífeyrissjóði.Út kom mjög há upphæð,40-50 milljarðar kr. En það hefur ekki verið reiknað út hvað Tryggingastofnun og ríkið hafa sparað mikið á því að skerða tryggingalífeyri eldri borgara vegna greiðslna úr lífeyrissjóði. Það eru gífurlega háar upphæðir og strangt til tekið ætti ríkið að greiða eldri borgurum allar þær upphæðir til baka.Það var tekinn lífeyrir,sem við eigum!
Björgvin Guðmundsson
Bloggar | Breytt s.d. kl. 07:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 14. febrúar 2017
ÖLL HÆKKUN ELDRI BORGARA FARIN!
Þórunn Sveinbjörnsdóttir formaður Félags eldri borgara í Reykjavik var í viðtali á Bylgjunni i gærmorgun.Hún ræddi hagsmunamál aldraðra vítt og breytt en hún lætur af formennsku í félaginu á aðalfundi 16.þ.m. eftir 4 ra ára starf.Hún sagði,að hækkun sú,er eldri borgarar fengu á lífeyri sínum um síðustu áramót hefði verið mjög lítil og misjöfn eftir því hvort um einhleypa eða gifta hefði verið að ræða.Hækkunin hjá þeim,sem væru í hjónabandi eða sambúð væri sáralítil. Verst væri þó þegar til félagsins kæmu eldri borgarar sem segðu,að vegna hækkunar á húsaleigu eða öðrum kostnaðarliðum væri þessi litla hækkun öll farin!Þórunn sagði,að í mörgum tilvikum jaðraði við mannréttindabrot gagnvart eldri borgurum: 3000 eldri borgarar hefðu ekki efni á að kaupa sér heyrnartæki; niðurgreiðslan væri svo lítil, aðeins 50 þúsund krónur á eyra. Þeir verst stæðu meðal eldri borgara væru svo illa staddr að þeir væru eins og útigangar.Þar væri um 200 manns að ræða. ( Þetta er ljótur blettur á velferðarlandinu Íslandi).Þórunn gagnrýndi niðurgreiðsluna á tannlækningum eldri borgara,sem hún sagði,að hefði ekki aukist síðan 2004.Hún gagnrýndi einnig harðlega skerðingu tryggingalífeyrs vegna fjármagsntekna og vegna fjármagnstekjuskatts en hún sagði,að ekki væri aðeins verið að reikna vexti sem fjármagnstekjur heldur einnig verðbætur.Þórunn sagði,að kannanir hefði leitt í ljós,að eldri borgarar legðu gifurlega mikið til samfélagsins í óbeinum vinnuframlögum,með barnapössun,með því að keyra barnabörnin,með því að sinna veikum börnum,með ýmis konar sjálfboðaliðastarfi og fleira og fleira.
Björgvin Guðmundsson
Bloggar | Breytt s.d. kl. 07:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 13. febrúar 2017
Aldraðir hafa það enn skítt!
Mikið er rætt um það nú,að kaupmáttur hafi aukist.Stjórnvöld tala um góðan efnahag þjóðarbúsins og afgang á fjárlögum.Hagvöxtur er meiri hér en á hinum Norðurlöndunum.Laun hjá ýmsum stéttum hafa stórhækkað, jafnvel um marga tugi prósenta. En einn hópur hefur setið eftir, þ.e. aldraðir og öryrkjar.Þessir aðilar hafa það enn skítt enda þótt flestir aðrir hafi það betra en áður.Og eyðslan hjá sumum sé komin á flug eins og fyrir hrun (2007).
Hvernig má það vera, að kaup og kjör flestra stétta hækki mikið en aldraðir og öryrkjar sitji eftir.Meðaltals tekjur í landinu voru 620 þúsund krónur á mánuði 2015 fyrir skatt. En aldraðr,sem eru í hjónaband, hafa 197 þúsund kr á mánuði eftir skatt.Það er aðeins tæplega þriðjungur af meðaltekjum.
Eyðslan í þjóðfélaginu er komin á flug.Íslendingar ferðast meira en nokkru sinni fyrr.RUV skýrði frá því, að Íslendingar ferðuðust meira til Bandaríkjanna en nokkurt hinna Norðurlandanna.Bílasala er í hámarki.En þrátt fyrir þessa miklu eyðslu hafa Íslendingar ekki efni á þvi að láta öldruðum og öryrkjum í té jafnmikinn lífeyri og þeir fá á hinum Norðurlöndunum.Ég er að tala um þá eldri borgara og öryrkja,sem eingöngu hafa lífeyr frá almannatryggingum.Þeim er skammtað svo naumt,að þeir geta ekki lifað mannsæmandi lífi af þeirri hungurlús.Kominn tími á breytingu.
Björgvin Guðmundsson
Bloggar | Breytt s.d. kl. 07:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 11. febrúar 2017
Eru 197 þúsund krónur á mánuði eftir skatt nógu há mánaðarlaun?
Ég beini máli mínu til alþingismanna.Þeir hafa nýlega fengið kauphækkun.Kaup þeirra hækkaði sl haust upp í 1100 þúsund á mánuði.Það er fyrir utan aukagreiðslur.
Spurning mín til alþingismanna er þessi: Teljið þið,að 197 þúsund krónur á mánuði eftir skatt séu nógu há laun fyrir aldraðra og öryrkja,sem eingöngu hafa lífeyri frá TR ? Ef svarið er neikvætt skora ég á alþingismenn að flytja strax frumvarp um að þetta verði leiðrétt.Þingmenn úr öllum flokkum geta tekið sig saman um að flytja frumvarp um þessa leiðréttingu.Þetta er ekki flokkspólitískt mál. Þetta er réttlætismál.Það er búið að tala nóg um það,að þingið eigi að vera sjálfstæðara;það eigi að gera sig meira gildandi.Nú er tækifærið.Það á ekki að bíða eftir einhverjum ráðherrum. Þingmenn eiga að taka sig saman og leiðrétta ranglætið.Ef þeir gera það, eru þeir að leiðrétta ranglæti og um leið eykst virðing fyrir alþingi.Þetta þolir enga bið.Þetta verður að gerast strax.
197 þúsund krónur á mánuði gildir fyrir þá eldri borgara,sem eru í hjónabandi eða í sambúð.Einhleypir fá örlítið meira eða 227 þúsund kr á mánuði eftir skatt.Það er síðan önnur saga,að þarna er verið að mismuna eldri borgurum.Öll mismunun er bönnuð.227 þúsund á mánuði,einnig hungurlús!
Björgvin Guðmundsson
Bloggar | Breytt s.d. kl. 09:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 11. febrúar 2017
Tímaskekkja að torvelda vinnu eldri borgara!
Rætt var um atvinnuþáttöku eldri borgara í sjónvarpsættinum Hringbraut í gær.Gestir stöðvarinnar voru þeir Jón Steindór Valdimarsson alþingismaður og Hannes Sigurðsson aðsoðarframkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins.Stjórnandi þáttarins spurði hvers vegna væri verið að banna eða tovelda eldri borgurum að vinna, þegar þeir væru orðnir 70 ára.Spurt var hvort það væri ekki tímaskekkja. Hannes Sigurðsson sagði, að á almenna markaðnum væri eldri borgurum ekki bannað að vinna eftir sjötugt.Einstaka fyrirtæki hefðu reglur um starfslok en yfirleitt væri starfsmönnum frjálst að vinna lengur ef þeir hefðu heilsu til þess.Hins vegar giltu þær reglur hjá opinberum starfsmönnum,að þeir yrðu að hætta störfum sjötugir.
Fram kom í þættinum,að ríkisstjórn Sjálfstæðisflokkins og Framsóknar torveldaði eldri borgurum að vera á vinnumarkaðnum með því að lækka frítekjumark vegna atvinnutekna þeirra úr 109 þúsund kr á mánuði í 25 þúsund á mánuði. Ekki er farið að leiðrétta þá skerðingu enn.Ef Viðreisn og Björt framtíð meina eitthvað með þvi að vilja greiða fyrir atvinnuþátttöku eldri borgara á að leiðrétta þetta strax og hækka frítekjumarkið á ný til fyrra horfs.Það á ekki að bíða með þessa leiðréttingu í mörg ár.Það er ekki eftir neinu að bíða.Það á að leiðrétta þetta strax,ef vilji er fyrir hendi.
Björgvin Guðmundsson
Bloggar | Breytt s.d. kl. 06:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 10. febrúar 2017
Hæstiréttur hundsar stjórnarskrána!
Hæstiréttur kvað í gær upp dóm í máli öryrkja,sem hafði verið öryrki á hæsta stigi frá því hann lenti í bílslysi 1993.Það var kona.Hún taldi,að stjórnvöld hefðu brotið gegn 76.grein stjórnarskrárinnar um að veita öryrkjum aðstoð eins og þurfi,þar eð örorkulífeyrir hennar dugi ekki til þess að hún get lifað mannsæmandi lífi.Hún tapaði málinu.
Ellen Calmon formaður Öryrkjabandalagsins lýsti megnri óánægju með dóm Hæstaréttar.Hún kvað þetta ekki í fyrsta sinn,sem Hæstiréttur hendi máli út úr réttarkerfinu án þess að taka efnislega meðferð til málsins.Hún kvað dómstóla huglausa; þeir þyrðu ekki að stíga inn á svið mannréttinda.Hæstiréttur taldi að löggjafinn hefði sinnt skyldu sinni með því að setja lög um almannatryggingar.
Samkvæmt því væri nóg fyrir Tryggingastofnun að láta öryrkja fá 50 þúsund kr á mánuði.Hæstiréttur teldi það í lagi,þar eð það væri samkvæmnt lögum um almannatryggingar!Þetta stenst ekki.Árið 2000 var kveðinn upp svokallaður öryrkjadómur,sem öryrkjar unnu.Þar var röksemdafærslan svipuð og nú,Ragnar Aðalsteinssin hrl. rak málið fyrir öryrkjann.Hann vann málið. Þetta virðist þá fara eftir því hverjir sitja í Hæstarétti sem dómarar.Öryrkjabandalagið íhugaer nú að fara með málið fyrir Mannréttindadómstól Evrópu.Það virðist vera eina leiðin. Ekki er unnt að treysta Hæstarétti Íslands.Enda hafa margir dómarar verið skipaðir pólitiskt.
Björgvin Guðmundsson
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)