Færsluflokkur: Bloggar
Föstudagur, 13. janúar 2017
Ólafur Thors vildi,að allir hefðu góðan lífeyri en Bjarni vill halda honum niðri!
Þegar ríkisstjórn Alþýðuflokksins,Sjálfstæðisflokksins og Sósialistaflokksins setti lög um almannatryggingar 1946,var Ólafur Thors, formaður Sjálfstæðisflokksins, forsætisráðherra.Hann lýsti því þá yfir, að almannatryggingar á Íslandi ættu að vera í fremstu röð slíkra trygginga í Evrópu og allir á Íslandi ættu að njóta þeirra án tillits til stéttar eða efnahags.Fyrst eftir lagasetninguna voru almannatryggingar á Íslandi í fremstu röð en síðan drógust þær aftur úr og í dag standa almannatryggingar á Íslandi langt að baki slíkum tryggingum á Norðuröndum og í Bretlandi.Lífeyrir á Ísland er aðeinsr brot slíks lífeyris í grannlöndum okkar. Ólafur Thors vildi efla almannatryggingar hér. Bjarni Benediktsson vill halda þeim niðri.Ólíkt hafast þeir að. Bjarni Benediktssn segir, að stjórnvöld séu að auka lífeyri aldraðra og öryrkja..En stjórnvöld eru ekki að efla almannatryggingar hér neitt.þau halda ekki einu sinni í horfinu. Laun hækkuðu hér um 14-20% á árinu 2015.Lágmarkslau um 14,5%.frá 1.mai 2015. Lífeyrir aldraðra og öryrkja hækkaöi ekkert í 8 mánuði og aðeins um 9,7% frá l.janúar 2016.Lífeyrir hækkaði miklu minna það ár en laun og 8 mánuðum seinna en laun. Það er því verið að brjóta lagaákvæði um að lífeyrir eigi að hækka í samræmi við launaþróun og það er verið að hlunnfara lífeyrisþega með því að draga þá á hækkun.Á árinu 2016 hækkuðu laun bæði i byrjun árs og á miðju ári en lífeyrir hækkaði aðeins í upphafi árs.Sagan frá 2015 var því endurtekin.Lífeyri var haldið niðri á árinu 2016 og lífeyrisfólk þurfti að bíða allt árið 2016 eftir hækkun sem ekki kom fyrr en 1,janúart 2017. Það var áfram níðst á öldruðum og öryrkjum í kjaramálum.Alþingismenn,ráðherrar og embættismenn þurftu hins vegar ekkert að bíða.Alþingismenn fengu 44% hækkun 13.oktober á kjördag ( lífeyrisfólk 7,5%),Laun alþingismanna hækkuðu í 1100 þús á mánuði fyrir skatt,ráðherrar hækkuðu í 2 milljónir á mánuði og embættismenn hækkuðu í 1,3 -1,6 milljónir á mánuði þeir hæstu og þeir fengu launin greidd 18 mánuði til baka.Aldraðir og öryrkjar eru enn með rúmlega 200 þúsund á mánuði eftir skatt og það var svo erfitt að greiða þeim þessa hungurlús,sem þeir fengu um áramótin,að ekki var unnt að greiða þeim þá hækkun alla í einu lagi,heldur í tvennu lagi.Allir þessir hálaunamenn,sem ég taldi upp hér að framan fengu hækkanir fyrir jólin en eins og áður var níðst á öldruðum og öryrkjum og þeir fengu ekki krónu hækkun fyrir jól.Nýja alþingið var ekki betra í því efni en það eldra.
Björgvin Guðmundsson |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 07:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 12. janúar 2017
Aldraðir og öryrkjar þurfi ekki að kvíða morgundeginum!
Á þeim undanförnum 10 árum,sem ég hef unnið að málefnum eldri borgara, hef ég kynnst kjörum mikils fjölda aldraðra .Þeir hafa greint mér frá kjörum sínum og hverng þeim hafi gengið að láta enda ná saman af þeim litla lífeyri ,sem ríkið hefur skammtað þeim. Þetta hafa í flestum tilvikum verið eldri borgarar, sem einungis hafa haft lífeyri frá almannatryggingum en engan lífeyrissjóð eða aðrar tekjur. Í nokkrum tilvikum hefur einnig verið um að ræða aldraða, sem haft hafa lítinn lífeyrissjóð, 50- 100 þúsund kr á mánuði.Það athyglisverða er, að kjör þeirra, sem haft hafa lítinn lífeyrissjóð, hafa verið sáralítið betri en þeirra, sem einungis hafa haft lífeyri frá Tryggingastofnun. Það hefur verið svo vegna mikillar skerðingar tryggingalífeyris.Tryggingastofnun hefur hrifsað svo mikið af tryggingalífeyri þeirra, sem haft hafa þennan lífeyri úr lífeyrissjóði, að lítið hefur verið eftir.
Strípaður lífeyrir dugar ekki fyrir öllum útgjöldum
Viðræður mína við eldri borgara hafa leitt í ljós, að þeir sem átt hafa húsnæði, skuldlitið, hafa komist miklu betur af en hinir, sem hafa þurft að leigja eða borga mikið af húsnæði sínu. Því miður er það svo, að þeir eldri borgarar,sem eru á strípuðum lífeyri eiga yfirleitt ekki húsnæði. Þessi hópur eldri borgara og raunar einnig öryrkja á mjög erfitt fjárhagslega. Lífeyrir almannatrygginga dugar yfirleitt ekki fyrir öllum útgjöldum og einhver nauðsynleg útgjöld verða ávallt útundan.Verst er þó, þegar lífeyririnn er búinn fyrir lok mánaðar og ekkert er til fyrir mat síðustu daga mánaðar. Þau eru ófá símtölin, sem starfsmenn Félags eldri borgara hafa fengið frá eldri borgurum, sem hafa verið í vandræðum síðustu daga mánaðarins.Ef ekkert er til fyrir mat, verður að leita til ættingja eða hjálparstofnana.
Alþingi gerði ekkert!
Er ekki kominn tími til að breyta þessu og ákvarða lífeyri aldraðra og öryrkja það háan, að hann dugi fyrir sómasamlegri framfærslu; aldraðir þurfi ekki alltaf að kvíða morgundeginum. Ég vísaði til nýs alþingis fyrir jólaleyfi, að þingið mundi hækka lífeyri myndarlega; annað hvort leysa mál aldraðra og öryrkja til frambúðar eða samþykkja að veita þeim góða hækkun fyrir jólin. Alþingi gerði hvorugt.Alþingismenn hældu hins vegar hver öðrum fyrir að hafa náð samkomulagi um fjárlagafrumvarpið. Hvaða gagn er í því, ef stórum vandamálum er skotið á frest.Það er lítið gagn í því.
Björgvin Guðmundsson
Fréttablaðið 12.janúar 2017
www.gudmundsson.net
.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 06:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 11. janúar 2017
Viðreisn og Björt framtíð fengu engin stefnumál samþykkt!
Eftir að nýr stjórnarsáttmáli nýrrar ríkisstjórnar hefur verið kynntur er alveg ljóst,að Sjálfstæðisflokkurinn hefur valtað yfir samstarfsflokkana,Viðreisn og Bjarta framtíð.Þessir stuðningsflokkar fá ekkert fram af sinum stefnumálum.Báðir flokkarni lögðu áherslu á kerfisbreytingu í sjávarútvegi og landbúnaði.En ekkert verður af henni.Og kröfu flokkanna um þjóðaratkvæði um aðildarsamning að ESB var sópað út af borðinu.Sjálfstæðisflokkurinn virðist hafa séð,að það var alveg sama hvað flokkurinn hafnaði mörgum stefnumálum smáflokkanna; alltaf voru þeir jafnaákafir að komast í stjórn með Sjálfstæðisflokknum.Þeir fórnuðu stefnumálunum fyrir ráðherrastóla.
Síðan er reynt að blekkja almennning með almennu orðalagi,sem þýðir ekki neitt,þar það vantar hverng á að framkvæma hlutina.Viðreisn boðaði að bjóða ætti upp aflaheimildir og fá meira greitt fyrir afnot af sjávarauðlindinni.Bæði Samfylking og VG voru sammmála þessu stefnumáli. En Sjálfstæðisflokkurinn synjaði þessu stefnumáli Viðreisnar og venti sínu kvæði í kross: Athuga á hvort aflaheimildir verði leigðar til 33 ja ára.Það mundi jafngilda því að úgerðinni væru gefnir kvótarnir til frambúðar.Sama er upp á teningnum í landbúnaðarmálum. Þar vildu smáflokkarnir gera kerfisbreytingu,innleiða meiri samkeppni i landbúnaðinn,leyfa meiri innflutning á landbúnaðarvörum og afnema einkaleyfi Mjólkursamsölunnar.Og þeir vildu breyta búvörusamningnum.Öllu þessu var synjað.En til þess að blekkja almenning og sérstaklega kjósendur smáflokkanna er sagt að endurskoða eigi búvörusamninginn 2019 en það var þegar búið að samþykkja á alþingi!Síðan er sagt að sthuga eigi hvort afnema megi einkasölu MS og fleira orðagjálfur í þessum dúr,sem enga þýðingu hefur.
Mest er þó niðurlæging smáflokkanna í Evrópumálum.Þar var skýlaus krafa Viðreisnar og kosningastefnumál að fram færi strax þjóðaratkvæði um aðildarviðræður að ESB.En því var synjað og sagt,að ekki yrði lagst gegn þingsályktunartillögu um aðildarviðræður að ESB í lok kjörtimabilsins. Ekki ætlar ríkisstjórnin að leggja þessa tillögu fram.Mun þetta í fyrsta sinn,að fjallað er um að í stjórnarsáttmála að leggja megi fram þingsályktunartillögu.Ekkert er í stjórnarsáttmálanum um að hækka eigi lífeyri þeirra aldraðra og öryrkja sem aðeins hafa lífeyri frá TR.
Að mínu mati er sáttmálinn mjög lélegur,almennt orðaður.Setningin um að heilbrigðismál verði sett í forgang hefur ekkert gildi,þar eð ekkert er sagt um að auka eigi framlög til málaflokksins. Og fram kom að ekki á að taka upp fjárlögin. Það þýðir,að Landspítalnn fær ekki meiri peninga.
Björgvin Guðmundsson
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 10. janúar 2017
Stjórnarsáttmálinn:Engin hækkun á lífeyri aldraðra og öryrkja!
Stjórnarsáttmáli nýju ríkisstjórarinnar var kynntur í dag.Mér lék hugur á að vita hvort ríkisstjórnin ætlaði að gera eitthvað til þess að bæta kjör aldraðra og öryrkja,sem aðeins hafa lífeyri frá almannatryggingum.En svo var ekki.Sá lífeyrir á ekki að hækka um eina krónu.Sama hungurlúsin og fráfarandi ríkisstjórn ákvað á að gilda áfram.
Hins vegar á eitthvað að hækka frítekjumark vegna atvinnutekna.Það hefur verið gífurleg óánægja með það að frítekjumarkið skyldi lækkað úr 109 þúsund kr í 25 þúsund kr á mánuði.Félag eldri borgara í Reykjavík hefur mótmælt þessu harðlega og ég hef skrifað margar mótmælagreinar gegn þessu.Ekki hefur verið talið stætt á því lengur að standa gegn hækkun frítekjumarksins:Það er gott svo langt sem það nær að hækka þetta frítekjumark en mikilægara er þó að hækka lífeyri þeirra,sem þurfa að lifa af lífeyri TR eingöngu.Þessi lífeyrir er svo lágur,að mjög erfitt er að framfleyta sér á honum.Hann verður að hækkka.
Ríkisstjórnin nýja segist ætla að hækka lífeyrisaldurinn í áföngum.Fráfarandi stjórn ætlaði einnig að gera það en hörfaði frá því. Það sparar ríkinu stórfé að hækka eftirlaunaaldurinn og þess vegna er þetta ákvæði nú komið þarna inn aftur.Það á að láta eftirlaunamennina sjálfa greiða aukin útgjöld í kerfinu.
Björgvin Guðmundsson
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 10. janúar 2017
Braut Bjarni siðareglur?
Umboðsmaður alþingis fær það til meðferðar hvort Bjarni Benediktsson,fráfarandi fjármálaráðherra, hafi brotið siðareglur ráðherra með því að halda skýrslu um aflandseignir og skattaskjól leyndri fram yfir kosningar.Svandís Svavarsdóttir,formaður þingflokks VG telur hugsanlegt, að þetta sé brot á siðareglum, þar eð í þeim segi,að stjórnvöld eigi að birta almenningi strax opinberar skýrslur nema það brjóti í bága við almannaheill.Hún hefur vísað málinu til umboðsmanns alþingis.
Opinber skýrsla um aflandseignir,fjármuni i skattaskjólum, var tilbúin 13.september sl.Þingið hætti störfum 13.oktober. Það var því nægur tími til þess að leggja skýrsluna fyrir þingið og efnahags-og viðskiptanefnd þingsins og kynna hana almenningi,En Bjarni Benediktsson ákvað að birta skýrsluna ekki.Hann stakk henni undir stól.Skýringar hans á því athæfi halda ekki vatni. Hann sagði,að ekki hefði verið tími til þess að leggja hana fyrir efnahags-og viðskiptanefnd fyrir kosningar.Það er rangt.Það var nógur tími,heill mánuður. En auk þess var unnt að birta hana almenningi um leið og hún var tilbúin.Ljóst er,að Bjarni hefur ekki viljað að skýrslan kæmi fram fyrir kosningar og yrði til umræðu í kosningunum.Það komu fram óþægilegar staðreyndir í skýrslunni um gífurleg skattaundanskot frá 1990 eða yfir 100 milljarða undanskot vegna þess að fjármunir voru settir í skattaskjól og ekki gefnir upp að fullu til skatts hér.Bjarni var sjálfur í Panamaskjölunum, þar eð hann var í skattaskjóli,sjálfur fjármálaráðherrann og axlaði ekki ábyrgð af því.Hugsanlegt er,að skýrslan hefði haft áhrif á kosningaúrslitin, ef hún hefði verið til umræðu í kosningabaráttunni eins og eðlilegt hefði verið.Lítið sem ekkert var rætt um Panamaskjölin í kosningabaráttunni,aðeins á fyrsta fundi með frambjóðendum en síðan ekki söguna meir eins og málið hefði verið tekið út af dagskrá.
Það er furðulegt,að sá maður sem stakk skýrslu um skattaskjólin undir stól og var sjálfur í Panamaskjölunim skuli nú leiddur til forsætis í nýrri ríkisstjórn!Slíkt ætti ekki að geta gerst.
Björgvin Guðmundssont
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 10. janúar 2017
Ekki nægilega margir hjúkrunarfræðingar á hjúkrunarheimilum
Gefinn hefur verið út rammasamningur milli Sjúkratrygginga Íslands,Sambands ísleskra sveitarfélaga og Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu um þá þjónustu,sem hjúkrunarheimili og dvalarheimili aldraðra eiga að veita.Samkvæmt samningnum munu greiðslur ríkisins til þeirra stofnana,sem samningurinn tekur til, nema 30 milljörðum á ári.Í tengslum við gerð samingsins var fjallað um viðmið Landlæknis varðandi lágmarks mannafla á hjúkrunarheimilum,lágmarks fjölda hjúkrunarfræðinga og annarra faglærðra starfsmanna.Mikil brögð hafa verið af því undanfarin ár, að hjúkrunarheimili hafi ekki uppfyllt lágmarksviðmið Landlæknis varðandi fjölda hjúkrunarfræðinga og annars fagfólks.Formaður og varaformaður Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu telja, að ástæða þess að ekki hafi tekist að uppfylla skilyrði (viðmið) Landlæknis í þessu efni sé fjárskortur; ríkið hafi ekki látið hjúkrunarheimilum í té nægilegt fé.Fjármagnið, sem ríkið láti hjúkrunarheimilum og dvalarheimilum í té í dag og undanfarið dugi hvergi nærri til þess að standa við viðmið Landlæknis varðandi lágmarks mönnun
Formaður Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu, Pétur Magnússon, og varaformaður samtakanna,Björn Bjarki Þorsteinsson, skrifuðu nýlega grein i Morgunblaðið um nýja rammasamninginn.Ekki kemur fram í greininni hvort árlegt framlag ríkisins til hjúkrunarheimila og fleiri stofnana,sem samingurinn tekur til, muni duga til þess að standa við viðmið Landlæknis varðandi lágmarks mönnun fagfólks á umræddum stofnunum. Það er slæmt,að það skyldi ekki koma fram,þar eð hér er um að ræða eitt mikilvægasta atriðið í sambandi við rekstur hjúkrunarheimila,Til þess að heimilin séu örugg þurfa að vinna nægilega margir hjúkrunarfræðingar á heimilunum svo og nægilega margir aðrir faglærðir.
Björgvin Guðmundsson
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 9. janúar 2017
Óttar Proppé svíkur kjósendur sína!
Aðalmál Bjartrar framtíðar fyrir kosningar var að taka ætti upp ný vinnubrögð.Ekkert fúsk,sagði Óttar.Hann boðaði kerfisbreytingu í landbúnaði og studdi kerfisbreytingu í sjávarútvegi.Ekkert af þessu nær fram að ganga.Óttar sagði þegar upp komst um Wintrismálið:
Forsætisráðherra er tengdur aflandsfélagi og hélt því leyndu. Orðspor Íslands er undir. Það er óhugsandi að Forsætisráðherra sé stætt.Gildir ekki það sama um nýjan forsætisráðherra,sem var í Panamaskjölunum og í aflandsfélagi?
Með þvi að fara í stjórn með Sjálfstæðisflokknum er Óttar að svíkja kjósendur Bjartrar framtíðar.Ég fullyrði,að ekki hefur hvarflað að einum einasta kjósanda Bjartrar framtíðar, að þeii væru að leiða Sjálfstæðisflokkinn til valda á ný með því að kjósa Bjarta framtíð.Þetta eru hrein svik við kjósendur,Óttar!
Björgvin Guðmundsson
www.gudmundsson.net
Bloggar | Breytt s.d. kl. 07:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 9. janúar 2017
Panamastjórnin:Engar kerfisbreytingar,engin atkvæðagreiðsla um ESB,ekkert!
Panamastjórnin sér dagsins ljós í dag eða á morgun.Þetta hafa verið mjög sérkennilegar stjórnarmyndunarviðræður. Viðreisn fór af stað með talsverðar kröfur, þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna við ESB, mikla kerfisbreytingu í sjávarútvegi og talsverða kerfisbreytingu i landbúnaði og verulegar breytingar á stjórnarskránni. En Sjálstæðisflokkurinn synjaði öllum þessum kröfum og beygði Viðreisn í duftið. Viðreisn lét sig hafa þetta þar eð flokkurinn mat meira ráðherrastóla en málefni.Eins var með Bjarta framtíð.Hún fékk engu framgengt og lét sig hafa það eins og Viðreisn. Það mun hafa hjápað íhaldinu að þjarma að Viðreisn og BF að VG og Framsókn gaf Sjálfstæðisflokknum undir fótinn.Bjarni sá, að ef Viðreisn og BF væru með einhvern uppsteit og vildu fara að fá einhver af stefnumálum sínum samþykkt mundi hann einfaldlega mynda stjórn með VG og Framsókn.Þeir flokkar biðu álengdar.Það verður almennt orðagjálfur í stjórnarsáttmála sem skiptir engu máli. Bjarni sveik stærstu málin sem voru í síðasta stjórnarsáttmála: Afnám verðtryggingar og þjóðaratkvæðagreiðslu um ESB.Hann fer því létt með að samþykkja nýjan sáttmala og svíkja á ný.
Viðreisn,Bjartri framtíð og VG hefur ekki skilist enn ,að alþingiskosningum var flýtt vegna aðildar Framsóknar og Sjálfstæðisflokksins að Panamaskjölunum.Það var ekki meiningin, að Panamaskjalaflokkarnir yrðu leiddir til valda á ný,hvorugur þeirra.En það eru Viðreisn og BF nú að gera; hjálpa öðrum þeirra að halda völdum.Sjálfstæðisflokkurinn er leiddur til valda á ný og foringi hans sem sjálfur var í Panamaskjölunum!
Björgvin Guðmundssonð
www.gudmundsson.net
Bloggar | Breytt s.d. kl. 06:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Sunnudagur, 8. janúar 2017
Eldri borgarar flæmdir af vinnumarkaðnum!
Kári Jónasson fyrrum fréttastjóri á RUV er eftirlaunamaður.Hann er í stóru viðtali á Fréttablaðinu í gær um eftirlaunaaldurinn og afstöðu stjórnvalda til þeirra eldri borgara,sem vilja vera á vinnumarkaðnum eftir að þeir eru orðnir eftirlaunamenn.Hann segir,að mikið sé talað um það í þjóðfélaginu,að mikið af ungu fólki flytjist til útlanda til þess að fá betri lífskjör ytra.Við þetta tapist mikill mannauður.En á sama tíma séu stjórnvöld að skikka menn á eftirlaunaaldri til þess að hætta að vinna áður en þeir séu tilbúnir til þess.Hann hefur þar í huga ný lög um almannatryggingar, sem tóku gildi um áramót en samkvæmt þeim lækkar frítekjumark vegna atvinnutekna úr 109 þúsund kr á mánuði í 25 þúsund kr á mánuði; eftir frítekjumarkið lækka greiðslur á ellilífeyri um 45%.
Kári fór að vinna sem leiðsögumaður eftir að hann hætti störfum sem fréttamaður og fréttastjóri. Hann tók nám í starfi leiðsögumanna og hóf síðan störf. Hann hefur haft ánægju af starfinu.Hann er óánægður með ráðstafnir stjórnvalda sem auka skerðingu tryggingalífeyris vegna atvinnutekna.
Þessi frásögn Kára er í samræmi við það sem Þórunn Sveinbjörnsdóttir formaður FEB í Rvk segir um aðför stjórnvalda að eldri borgurum á vinnumarkaði en hún sagði,að eldri borgarar sem væru leiðsögumenn erlendra ferðamanna mundu hætta störfum vegna nýrra ráðstafana stjórnvalda.Og það sama sagði hún að gerast mundi með eldri borgara,sem sætu yfir í prófum háskólanna.Þeir mundu einnig hætta störfum.
Björgvin Guðmundsson
www.gudmundsson.net
Bloggar | Breytt s.d. kl. 06:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 8. janúar 2017
Eldri borgarinn lækkaði um áramót!
Eldri borgari kom að máli við mig og skýrði mér frá því hvað hann hefði fengið mikla hækkun hjá fráfarandi ríkisstórn nú um áramótin.Hann kvaðst hafa séð, að lífeyrir ætti að hækka um 7,5% um áramótin.En ekki væri hann að fá þá hækkun og enga aðra hækkun um áramót .Hann hefði áður haft 25.061 krónur á mánuði frá almannatryggingum en nú hefði sú upphæð hrapað í 13.386 kr.Það er nálægt 50 % lækkun. Þrátt fyrir boðaðar hækkanir um áramót fær þessi eldri borgari því enga hækkun,heldur lækkun! Hann fær greiðslu úr lífeyrissjóði og samanlagðar greiðslur sem hann fær frá lífeyrissjóði og almannatryggingum nema 248 þúsund krónum á mánuði. Eldri borgaranum finnst það lítið eftir allt ævistarfið og skilur ekki hvers vegna ríkið geti óbeint seilst í lífeyrissjóðinn á þann hátt að skerða tryggingalífeyri almannatrygginga vegna þess að hann hafi greitt í lífeyrissjóð.
Mikill fjöldi eldri borgara og öryrkja hefur haft samband við mig á nýja árinu til þess að ræða um nýju almannatryggingalögin og breytingarnar sem gerðar voru á þeim.Allir áttu þeir von á miklum hækkunum frá áramótum vegna fullyrðinga ráðamanna um að lífeyrir þeirra mundi hækka einhver ósköp frá áramótum en þeir urðu fyrir miklum vonbrigðum.Þeir fengu ýmist mjög litlar hækkanir eða lækkanir eins og sá eldri borgari,sem hér er fjallað um.
Björgvin Guðmundsson
Bloggar | Breytt s.d. kl. 06:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)