Ingibjörg Sólrún boðar breytingar og kosningar

Ef landsfundur Sjálfstæðismanna samþykkir ekki að sækja um aðild að Evrópusambandinu er mjög líklegt að þurfi að ganga til kosninga. Þetta sagði Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra í þættinum vikulokin á Rás 1 í morgun.

Ingibjörg sagði að ef ekki yrði gengið til aðildarviðræðna á nýju ári væri staðan sú að í ríkisstjórn væru tveir flokkar með gjörólíka stefnu í peningamálum og horfa með algerlega ólíkum hætti á þau verkefni sem fyrir höndum eru. Samstarfi flokkanna væri því sjálfhætt.

Þá verður ríkisstjórnin verður að svara kalli almennings um breytingar í Seðlabankanum, fjármálaeftirlitinum og ríkisstjórn að mati Ingibjargar. Hún vildi þó ekki gefa upp hverjar breytingarnar yrðu, eða hvort mönnum yrði skipt út.( Vísir.is)

Ummæli Ingibjargar Sólrúnar vöktu mikla  athygli.Sumir túlkuðu þau sem svo.að hún væri að boða stjórnarslit ef Sjálfstæðisflokkurinn samþykkti  ekki aðild að ESB.En svo var ekki .Hún var að segja,að .það yrði að efna til kosninga í slíku tilviki.

 

Björgvin Guðmundsson

Björgvin Guðmundsson

 

 

 





Ekki tókst að verja velferðarkerfið að fullu

Ríkisstjórnin hefur talað um það undanfarið að verja þyrfti velferðarkerfið.Einkum hefur Samfylkingin og Jóhanna talað um það.En það virðist ekki hafa tekist að fullu.Lítum á almannatryggingar og heilbirgðiskerfið:

Almannatryggingar. Það hefur verið lögbundið að bætur almannatrygginga hækkuðu í samræmi við hækkanir á vísitölu neysluverðs.Það var ekki gert við endurskoðun frumvarps til fjárlaga. Farin var sú leið að láta allra  lægstu bætur ( 150 þús. á mán.) fá fulla vísitöluhækkun( ca. 20%).En aðrar bætur almannatrygginga fá aðeins  tæplega  10% hækkun.Það vill segja,að t,d. eldri borgarar og öryrkjar,sem höfðu lífeyri  yfir 150 þús á mánuði fengu aðeins 10% hækkun eða helming verðlagshækkunar. Bætur þessa hóps eru lækkaðar að raungildi  til.Forseti ASÍ mótmælti þessu harðlega og sagði,að bótaþegar TR væru fátækt fólk,sem ætti að fá fullar verðlagsbætur.

Heilbrigðiskerfið. Þar er skorið mikið niður,einkum á Landsspítalanum en þar nemur niðurskurður 1,7 milljarði. Ef erfitt að sjá hvernig það getur gengið þar eð nógu erfitt hefur verið að reka spítalann án þessa niðurskurðar.

Almenningur gerir sér það ljóst,að  skera þarf   eitthvað niður.En sagt var   að velferðarkerfið yrði varið. Það tókst ekki nema takmarkað. Þetta eiga stjórnvöld að viðurkenna en ekki vera að segja við almenning að tekist hafi a verja velferðarkerfið,þegar það hefur ekki tekist.Það sparast um 4 milljarðar á því að  skerða bætur almannatrygginga um 10%,aðrar en þær allra  lægstu. Það hefði átt að skera eitthvað annað niður en láta þessar bætur haldast að verðgldi til.Eða þá að hafa hallann 4 milljörðum meiri.Þegar upp er staðið verður sparnaðurinn ekki 4 milljarðar.Það koma ýmis útgjöld hjá ríki og sveitarfélögum   á  móti  þegar gengið er of nærri bótaþegum.

Björgvin Guðmundsson


Ingibjörg Sólrun vill breytingar

Ingibjörg Sólrún formaður Samfylkingar og Ágúst Ólafur varaformaður sátu fyrir svörum í þætti RUV Í vikulokin í morgun.Ingibjörg   var spurð  hvort  ekki þyrfti að gera breytingar á FME,Seðlabanka og ríkisstjórn vegna bankakreppunnar og efnahagskreppunnar.Hún sagði að gera þyrfti breytingar.Hún útskýrði ekki nánar í hverju þær breytingar ættu að vera fólgnar en gaf til kynna að breyta ætti hjá öllum þessum aðilum FME,Seðlabanka og ríkisstjórn.Minna má á,að rætt hefur verið um það að sameina Seðlabanka og Fjármálaeftirlit.Ef það yrði gert  yrði staða nýs yfirmanns ( nýrra yfirmanna) sjálfsagt augýst.Leiðtogar   stjórnarflokkanna hafa ekki rætt um breytingar á ríkisstjórninni en sá tími er nú að koma að eðlilegt er að gera einhverjar breytingar ef á annað borð á að gera þær.Ef kosið verður næsta vor verður nynduð ný ríkisstjórn að  þeim loknum,annað hvort með sömu flokkum og breyttu ráðherraliði eða  alveg ný stjórn.

 

Björgvin Guðmundsson


Guðni Ágústsson tekur til máls

Jafnvel hefði átt að vísa breska sendiherranum úr landi og Ísland átti þess vegna að segja sig úr NATÓ við þessar aðstæður, þá hefðu aðrar þjóðir áttað sig á því að næstum var verið að fremja á okkur þjóðarmorð. Ísland hefur aldrei farið með ófriði eða vopnavaldi að annarri þjóð,“ segir Guðni Ágústsson, fv. formaður Framsóknarflokksins, í viðtali við Morgunblaðið um aðgerðir sem hann telur að ríkisstjórnin hefði átt að grípa til eftir að Bretar beittu hryðjuverkalögum á Íslendinga.

Í viðtalinu ræðir Guðni um brotthvarf sitt úr stjórnmálum og miðstjórnarfundinn fræga, sem hann segir að hafi valdið sér gríðarlegum vonbrigðum og verið visst áfall sem gerði að verkum að hann sá að hann myndi ekki ná því að binda flokkinn saman og skapa samstöðu innan hans.

„Daginn áður sögðu ungliðarnir mér að þeir myndu leggja mikla áherslu á sátt og samstöðu flokksins og framtíð hans. Annað kom á daginn og öðruvísi andrúmsloft einkenndi fundinn. Það er rétt að mér hitnaði í hamsi,“ segir Guðni. Hann segist genginn af vettvangi stjórnmála og ekki munu sækjast eftir pólitískum frama á ný. (mbl.is)

Guðni er alltaf hressilegur í tali og ákveðinn í skoðunum og  svo er í viðtalinu við Mbl.Það er mikil eftirsjá af honum úr pólitíkinni.

 

Björgvin Guðmundsson 


mbl.is Hefði jafnvel átt að segja Ísland úr NATÓ
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tveir þingmenn Sjálfstæðisflokksins vilja viðræður um aðild að ESB

Bjarni Benediktsson og Illugi Gunnarsson, þingmenn Sjálfstæðisflokksins, hvetja til þess í grein sem birt er í Fréttablaðinu í dag að Ísland hefji aðildarviðræður við Evrópusambandið og að ákvörðun um inngöngu verði undir þjóðaratkvæði. Þetta kemur fram í grein sem þeir skrifa í Fréttablaðið í dag.

Í greininni segja þeir að sú ákvörðunin megi þó ekki eingöngu snúast um gjaldmiðilsmál heldur þurfi að kanna málið frá öllum hliðum. þeir telji hins vegar að til lengri tíma muni krónan reynast Íslendingum fjötur um fót og að þær aðstæður sem skapast hafi kalli á að ráðist verði í aðildarviðræður og að í kjölfar þess taki þjóðin ákvörðun um málið.(mbl.is)

Aðstaða þessara tveggja þingmanna til ESB bendir til þess að Sjálfstæðisflokksins sé að mjakast í átt við ESB. Áður hafa formaður og varaformaður talað jákvætt á svipuðum nótum,

 

Björgvin Gu'mundsson

Fara til baka 


mbl.is Hvetja til viðræðna og atkvæðagreiðslu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 13. desember 2008

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband