Ólafur Þ.Stephensen nýr ritstjóri Mbl.

Ólafur Þ. Stephensen, ritstjóri 24stunda, hefur verið ráðinn ritstjóri Morgunblaðsins og aðalritstjóri Árvakurs hf. frá og með 2. júní næstkomandi. Auk Morgunblaðsins gefur Árvakur út 24 stundir og mbl.is.

Sama dag lætur Styrmir Gunnarsson af starfi ritstjóra Morgunblaðsins fyrir aldurs sakir. Styrmir Gunnarsson hefur verið ritstjóri Morgunblaðsins frá 1972, en hann kom fyrst til starfa á Morgunblaðinu sem blaðamaður 2.júní 1965.

Þetta er gott val og kemur ekki á óvart.Ólafur hefur staðið sig vel sem  ritstjóri 24ra stunda.Það verður talsverð breyting á Mbl. með tilkomu Ólafs sem ritstjóra. Hann er mun frálslyndari en Styrmir og hann er hlynntari  ESB en Styrmir sem er  alger andstæðingur sambandsins.

 

Björgvin Guðmundsson

 

 


mbl.is Ólafur nýr ritstjóri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Staða eldri borgara í kjölfar kjarasamninga rædd

Í morgun sendi ég Helga K.Hjálmssyni,formanni Landssambands eldri borgara (LEB) svohljóðandi tölvupóst:
"Á fundi  félagsmálanefndar alþingis í gær kom fram það samdóma álit aldraðra,öryrkja og ASÍ að það vantaði um 10 þús. kr. á mánuði eða 3,6 milljarða á árinu upp á að lífeyrisþegar fengju það sem þeir ættu að fá sem hækkun vegna nýgerðra kjaraaamninga.Vísað var í samkomulag LEB og ÖBI við ríkisstjórnina frá 2006 ,þar sem, ákveðið var að miða við breytingar á dagvinnutekjutryggingu en ekki meðaltali lægstu launa þegar ákveðið væri hvað breyta ætti lífeyri mikið við breytingu kjarasamninga.
Það er greinilega verið að auka gliðnunina á ný og LEB verður að bregðast við þessu ranglæti af fullri hörku"
.
Ákveðið hefur verið að 60+,samtök eldri borgara í Samfylkingunni,Samtök eldri borgara í Sjálfstæðisflokknum,Landssamband eldri borgara og Félag eldri borgara í Reykjavik,þ.e. stjórnir þessara samtaka allra, komi saman n.k. mánudag til þess að ræða stöðu eldri borgara í kjölfar nýgerðra kjarasamninga.
Björgvin Guðmundsson

Bankarnir skulduðu 5997,6 milljarða erlendis um síðustu áramót

Hinn 15.mars sl. skrifaði  ég eftirfarandi:

 

Samkvæmt hagtölum Seðlabankans nema heildarskuldir þjóðarinnar erlendis 7138,3 milljörðum króna,miðað við síðustu áramót. Árið áður námu þær 5207,2 milljörðum.Hið opinbera skuldar aðeins 243,5 milljónir.En bankar og aðrar innlánsstofnanir skulda 5997,6 milljarða,miðað við 4262,8 milljarða árið áður.  Samkvæmt þessum tölum er ljóst,að bankarnir hafa farið mjög óvarlega á síðasta ári með því að  auka svo mjög erlendar skuldir sínar. Heita má,að nú hafi verið skrúfað fyrir bankana erlendis varðandi auknar lántökur. Þeir geta fengið lán en á mikið verri kjörum en áður.

Seðlabankinn á  að hafa eftirlit með bönkunum og hann hefði getað sett bönkunum skorður varðandi  lántökur erlendis.En hann kaus að loka augunum og gera ekki neitt.

Þessar erlendu skuldir hafa stórhækkað vegna gengislækkunar krónunnar.

 

Björgvin Guðmundsson

 


Almenningi ofbýður hátt verð á bensíni og olíum

Atvinnubílstjórar eru nú að loka Suðurlandsvegi við Olís-stöðina við Rauðavatn í báðar áttir. Samkvæmt upplýsingum blaðamanna mbl.is sem er á staðnum eru um tuttugu flutningabílar á staðnum og fjölgar jafnt og þétt í hópnum.

Sturla Jónsson, talsmaður atvinnubílstjóra, sagði í samtali við mbl.is í morgun að bílstjórarnir væru að taka hvíldartíma og að það væri misjafnt eftir mönnum hversu langan vinnutíma þeim bæri að taka.

Þá sagðist hann bíða eftir því  að þjóðin fari að „standa í lappirnar"  og taka þátt í mótmælaaðgerðum bílstjóranna. Spurður um það hvort það flæki ekki málið að bílstjórar séu að mótmæla álögum sem varði allt samfélagið annars vegar og atriðum er varða atvinnumál þeirra hins vegar sagði hann að svona væri þetta bara. Sum hagsmunamál varði aðallega þrönga hópa en önnur bæði einstaka hópa og samfélagið í heild.

Fram til þessa hafa aðgerðir  bílstjóra notið nokkuð mikillar samúðar almennings. Spurning er þó hvað sú samúð helst lengi.Ég hygg t.d. ,að barátta bílstjóra fyrir undanþágum frá vinnutímareglum ESB njóti ekki mikillar samúðar,þar eð þar er um umferðaröryggi að ræða.Bílstjórar þurfa sinn hvíldartíma eins og  bílstjórar úti í Evrópu. Samgönguráðherra hefur sagt,að ekki verði slakað á umferðaröryggiskröfum. Almenningur er áreiðanlega sammála því. En hins vegar ofbýður öllum hið háa verð á besíni og dieselolíu.Í þeirri baráttu njóta bílstjórar mikillar samúðar.

 

Björgvin Guðmundsson

 

Fara til baka Til baka


mbl.is Bílstjórar „taka hvíldartíma"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hillary vann í Pennsylvania.En dugar það?

Hillary Clinton, öldungadeildarþingmaður New York, sigraði keppinaut sinn Barack Obama, öldungadeildarþingmann Illinois, í forkosningum demókrata í Pennsylvaníu í gær.  Clinton fékk 55% atkvæða og Obama 45%. 

Kosið var um 158 kjörmenn í Pennsylvaníu og samkvæmt fréttavef Reuters hafði Clinton tryggt sér 75 kjörmenn og Obama 65 í Pennsylvaníu.  Obama hefur tryggt sér alls 1720 kjörmenn og Clinton 1588.  Frambjóðandi þarf 2025 kjörmenn til að tryggja sér útnefningu á flokksþingi Demókrataflokksins í júní.

Stjórnmálaskýrendur segja að Clinton hafi þurft á sigrinum að halda til þess að eiga möguleika á að verða útnefnd forsetaefni demókrata. Þeir efast hins vegar um að sigurinn hafi verið nógu afgerandi til að hleypa nýju lífi í framboð Clinton.

Talið var áður en þessar kosningar í Pennsylvania fóru fram,að sigur þar væri alger forsenda fyrir Hillary til þess að halda baráttunni áfram. En sigur hennar yfir Obama er samt engan veginn öruggur.Obama er enn með fleiri kjörmenn  yfir landið. Írslitin ráðast á flokksþingi demobkrataflokksins. Heyrst hafa raddir um að fá verði  þriðja frambjóðandann til þess að sameina fylkingarnar og hefur nafn Al Gore einkum verið nefnt í því sambandi.

 

Björgvin Guðmundsson

Fara til baka 


mbl.is Clinton sigraði í Pennsylvaníu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

3,6 milljarðar hafðir af lífeyrisþegum í ár!

Félagsmálanefnd alþingis hélt fund í gær til þess að ræða breytingar á lífeyri aldraðra og öryrkja vegna nýgerðra kjarasamninga.Á fundinn voru boðaðir fulltrúar aldraðra og öryrkja   ásamt fulltrúum ASÍ. Það var samdóma álitaldraðra,öryrkja og ASÍ á fundinum að  miðað við samkomulag sem gert var við stjórnvöld 2006 hefðu lífeyrisþegar nú átt að fá sömu hækkun á lífeyri sínum og láglaunafólk fékk á sínum launum eða 18000 kr. á mánuði.( 15% hækkun)Lífeyrisþegar fengu hins vegar aðeins 9,4% hækkun að meðtalinni hækkun um áramót. Sögðu fulltrúar ASÍ, að hér munaði  10 þús. kr á mánuði eða  3,6 milljörðum króna á árinu.Er ljóst samkvæmt þessu,að haldið er áfram sama leik og leikinn var í langri stjórnartíð Sjálfstæðisflokks og Framsóknar en frá 1995 voru tugir milljarða hafðir af lífeyrisþegum.Nú er áfram vegið í sama hnérunn og nú 3,6 milljarðar hafðir af bótaþegum.

 

Björgvin Guðmundsson


Bloggfærslur 23. apríl 2008

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband