Mánudagur, 7. apríl 2008
Kærkomin hækkun húsaleigubóta
Jóhanna Sigurðardóttir, félagsmálaráðherra, undirritaði í dag reglugerð sem kveður á um hækkun húsaleigubóta frá og með 1. apríl. Húsaleigubætur hafa ekki hækkað frá árinu 2000. Einnig mun ríkið nú í fyrsta skipti koma að greiðslu sérstakra húsaleigubóta.
Samkvæmt reglugerðinni hækka grunnbætur húsaleigubóta um 69%, úr 8000 krónum í 13.500 krónur, bætur vegna fyrsta barns hækka um 100%, úr 7000 krónum í 14.000 krónur og bætur vegna annars barns hækka um 42%, úr 6000 krónum í 8500 krónur. Hámarkshúsaleigubætur hækka þar með um 15.000 krónur eða um 48% og geta hæstar orðið 46.000 krónur í stað 31.000 krónur áður. Hækkunin tekur gildi frá og með 1. apríl síðastliðnum en húsaleigubætur hækkuðu síðast árið 2000.
Þessi hækkun húsaleigubóta er kærkomin. Margt ungt fólk og eldri borgarar á nú í miklum erfiðleikum með að greiða húsaleigu vegna þess hve mikið hún hefur hækkað. Húsaleigubæturnar geta því hjálpað til.
Björgvin Guðmundsson
![]() |
Húsaleigubætur hækka |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Mánudagur, 7. apríl 2008
Ísland sniðgangi opnunarhátíð olympíuleikanna
Mánudagur, 7. apríl 2008
Á Ísland að fá sæti í Öryggisráðinu
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra sagði erfitt að meta hversu raunhæfa möguleika Ísland ætti að komast í öryggisráð Sameinuðu þjóðanna. Hún ræddi framboðið við forystumenn sem sóttu fund Atlantshafsbandalgsins í Búkarest í Rúmeníu.
Greidd verða atkvæði um framboð í öryggisráðið í október nk. Ingibjörg Sólrún sagðist ekki treysta sér til að spá fyrir um líkur á að Ísland næði kjöri í ráðið.
Utanríkisráðuneytið hefur lagt mikla vinnu í að afla Íslandi fylgis. Hefur það kostað talsverða fjármuni Miðað við það er æskilegt að baráttan beri árangur og Ísland fái sæti í Öryggisráðinu. Hins vegar er mikil spurning hvort Ísland átti nokkru sinni að sækjast eftir þessu sæti. Þetta er ef til vill of dýrt fyrir Ísland og það mun kosta aukinn mannafla fyrir Island ef sætið vinnst.
Björgvin Guðmundsson
![]() |
Ræddi framboð Íslands í öryggisráðið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 7. apríl 2008
Hlutabréf hækka í kauphöllinni hér
Hækkanir einkenna norræna hlutabréfamarkaði í morgun . Úrvalsvísitalan hefur hækkað um 1,9% frá opnun Kauphallar Íslands klukkan 10. SPRON hefur hækkað um 7%, Exista um 3,4%, FL Group 2,7% og Kaupþing 2,4%.
Í Ósló nemur hækkun hlutabréfavísitölunnar 1,1%, Kaupmannahöfn og Helsinki 1,5%, Stokkhólmur 1,2% og samnorræna vísitalan Nordic 40 1,5%.
Hækkun hlutabréfa hér er athglisverð til viðbótar við hækkun krónunnar. Þetta bendir til þess að tiltrú á íslensku efnahagslífi sé að aukast á ný.Það var búinn að vera mj0g mikill áróður gegn íslensku fjármálalífi í erlendum blöðum að undanförnu og sá áróður sagði til sín. Ef til vill geta bankarnir unnið sig út úr erfiðleikum sínum af eigin rammleik.
Björgvin Guðmundsson
´
![]() |
SPRON hækkar um 7% |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Mánudagur, 7. apríl 2008
Gengi krónunnar hefur styrkst um 9% á hálfum mánuði
Gengi krónunnar hefur styrkst um rúm 2,2 prósent frá byrjun dags og stendur gengisvísitalan í rúmum 145 stigum. Til samanburðar fór vísitalan hæst í rúm 158 stig í enda mars. Þetta jafngildir því að gengi krónunnar hefur styrkst um níu prósent á hálfum mánuði.
Bandaríkjadalur stendur í 71,9 krónum, breska pundið í 143 krónum og evran í 113 krónum. Hæst fór evran í 123 krónur fyrir um hálfum mánuði.
Þetta bendir til þess,að af þeim 30%,sem krónan hafði fallið um frá nóvember sl. hafa 9% gengið til baka.Búast má við,að áfram verði sveiflur á genginu.Styrking krónunnar sl. hálfan mánuð bendir til þess að ekki sé þörf á því að hækka vöruverð. Meðan gengi krónunnar stóð sterkt og krónan hækkaðo hvað eftir annað varð þess ekki vart,að vöruverð lækkaði.Neytendur eiga það því inni,að vöruverð standi a.m.k. óbreytt.
Björgvin Guðmundsson
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 7. apríl 2008
Geir með einkaflugvél á ný til útlanda
Nokkrar umræður hafa orðið um þá ráðst0fun forsætisráðherra og utanríkisráðherra að taka á leigu einkaþotu til þess að ferðast til Búkarest á leiðtogafund NATO.Forsætisráðherra. Nú hefur forsætisráðherra á ný tekið flugvél á leigu vegna fundar erlendis. Geir H. Haarde, sækir fund norrænu forsætisráðherranna um alþjóðavæðingu og áhrif hennar í bænum Riksgränsen í Norður-Svíþjóð dagana 8.9. apríl.
Fundinn sækir einnig viðskiptaráðherra sem staðgengill samstarfsráðherra Norðurlanda, auk starfsmanna. Tveir sérstakir gestir ráðherranefndarinnar koma einnig til fundarins frá Íslandi, ritstjóri Fréttablaðsins og aðstoðarframkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins.
Alls verða 7 manns í hópnum. Ráðherra fer af landi brott síðdegis 7. apríl og kemur heim að kvöldi 9. apríl. Flugvél frá flugfélaginu Erni hefur verið leigð til fararinnar. Með því sparast 1-2 ferðadagar á mann. Lauslega áætlaður kostnaðarauki miðað við að fljúga í áætlunarflugi er um 8-900 þús. krónur, samkvæmt því sem fram kemur á vef stjórnarráðsins.
Ég tel,að æskilegra sé að ráðamenn þjóðarinnar ferðist að öðru jöfnu eins og þegnar landsins,þ.e. með áætlunarflugi. Ekki eigi að grípa til þess að leigja einkaflugvélar nema í undantekningartilvikum.Venjan hefur verið sú,að ráðamenn þjóðarinnar hafa ferðast á sama hátt og almenningur og best væri að halda því.
Björgvin Guðmundsson
![]() |
Forsætisráherra á ferð og flugi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |