Eigum við að afþakka lánin frá Norðurlöndunum?

Ingvi Örn Kristinsson hagfræðingur var gestur hjá Ingva Hrafni á sjónvarpsstöðinni INN  í dag. Þeir ræddu m.a. aðstoð AGS til Íslands. Ingvi Örn spurði hvað  þyrfti til að koma til þess að Ísland fengi lánið frá AGS,sem haldið er föstu og ekki fæst greitt út.Ingvi Örn sagði,að ein leiðin væri sú að Ísland fengi lán hjá öðrum þjóðum í stað Norðurlandanna. Norðurlöndin gera það að skilyrði fyrir því að greiða út sín lán til Íslands að Icesave deilan verði leyst.AGS gerir það að skilyrði fyrir  útgreiðslu,að Norðurlöndin greiði út sín lán. Þetta  er sjálfhelda.Ef Ísland fengi lán hjá öðrum þjópum,t.d. Kína,Japan og Kanada án skilyrða  gæti Ísland afþakkað lánin frá Norðurlöndunum. Hér er ef til vill komin leið til lausnar málinu. Ísland ætti að vinda sér í að fá lán hjá öðrum þjóðum.Ég er viss  um að framangreindar þjóðir mundu lána okkur.

 

Björgvin Guðmundsson

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband