Formaður Samfylkingar: Þetta var sameiginlegt strand okkar

Flokksstjórnarfundur Samfylkingar um skýrsluna hófst í dag.Jóhanna Sigurðardóttir flutti ræðu og i m.a.  kom eftirfarandi fram:

Samkrull atvinnulífs, stjórnmála og stjórnsýslu reyndist vera höfuðmeinsemd í íslensku þjóðfélagi, að mati Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra og formanns Samfylkingarinnar. „Horfumst í augu við það. Þetta var sameiginlegt strand þar sem einn á meiri sök en annar en við flest létum það eigi að síður viðgangast eða fengum ekki við ráðið," sagði Jóhanna í ræðu á flokksstjórnarfundi Samfylkingarinnar í Garðabæ fyrr í dag.
Ég vil byrja á því að segja að það er engin eftirspurn eftir „ekki benda á mig" leiknum. Við getum ekki og eigum ekki að bregða okkur í hlutverk varðstjórans sem var að æfa lögreglukórinn. Engu að síður er það skylda okkar að reyna eftir fremsta megni að skilgreina ástæður þess og orsakir að illa fór. Og okkur ber að viðurkenna að Samfylkingin var hluti af því samfélagi sem lét það líðast að viðskiptablokkir tefldu þjóðarhag í stórkostlega hættu og töpuðu taflinu með hrikalegum afleiðingum fyrir landsmenn alla."
Jóhanna sagði að Samfylkingin hafi staðið gegn hugmyndafræði nýfrjálshyggjunnar en engu að síður smitast af henni undir merkjum Blairismans svokallaða, sem hafi verið tilraun til þess að tengja saman hugmyndir jafnaðarmanna og drifkrafta markaðsaflanna.

„Það má segja að við höfum - um tíma að minnsta kosti - vikið frá þeirri norrænu hugsun að pólitíska valdið eigi að vera mótvægi við markaðsöflin en ekki meðspilari þeirra."


Jóhanna sagði brýnt að Samfylkingin nýtti rannsóknarskýrsluna til þess að læra af henni. „Enda þótt Samfylkingin verði ekki sökuð um að bera ábyrgð á hugmyndafræðinni eða einkavinavæðingunni sem eru rætur ófaranna í fjármálakerfinu þá er ljóst að við vorum hluti af ríkisstjórn sem hefði samkvæmt skýrslunni getað minnkað skaðann með markvissari viðbrögðum. Þar liggur ábyrgð Samfylkingarinnar."

Björgvin G. Sigurðsson, fyrrverandi viðskiptaráðherra, hefur vikið úr formennsku þingflokksins og tekið sér hlé frá þingstörfum vegna starfa þingnefndarinnar og þeirra ábendinga sem fram koma í skýrslunni.

Um þá ákvörðun sagði Jóhanna: „Ég ber virðingu fyrir ákvörðunum hans og veit að þær gerir hann í þágu Samfylkingarinnar og til þess að valda félögum sínum á þingi og í flokki sem minnstum vandkvæðum."

Í ræðu sinni fjallaði Jóhanna um einkavæðingu bankanna. „Ég hef áður sagt að ég myndi vilja bíða niðurstöðu rannsóknarnefndarinnar áður en tekin yrði ákvörðun um sérstaka rannsókn á einkavæðingu ríkisbankanna. Það er augljóst af framansögðu að hennar er þörf og og ég segi það hér að það verður undirbúið."(visir.is)

Þetta var góð ræða hjá Jóhönnu.

 

Björgvin Guðmundsson



« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband