Ingibjörg Sólrún grét eftir tilfinningarþrungna ræðu

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi utanríkisráðherra, flutti mjög tilfinningaþrungna ræðu á flokksstjórnarfundi Samfylkingarinnar í Fjölbrautarskólanum í Garðabæ eftir hádegi í dag.

Hún sagðist hafa brugðist sjálfri sér og Samfylkingunni þau tvö ár sem hún var í samstarfi við Sjálfstæðisflokkinn. Hún hafi brugðist þegar hún leiddi flokkinn í ríkisstjórnarsamstarf sem gat ekki tekið á þeim mikla vanda sem við blasti. Fundargestir risu á fætur og gáfu henni dynjandi lófatak þegar hún gekk  grátandi úr ræðustól.(ruv.is)

Ingibjörg Sólrún sýndi mikið hugrekki með því að flytja þessa ræðu.Það var rétt sem hún sagði.Það voru mistök að fara í stjórn með Sjálfstæðisflokknum og m.a. þurfti Samfylkingin að ita kvótamálinu út af borðinu til þess að  greiða fyrir stjórnarsamstarfinu.Samfylkingin átti aldrei að fórna kvótamálinu fyrir stjórnarsamstarfið en auk þess gat stjórnin ekki tekið á þeim mikla vanda sem við blasti eins og Ingibjörg Sólrún sagði.

Björgvin Guðmundsson

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Kvótakerfið var komið á í tíð Alþíðuflokks, Alþíðubandalag og Framsókn svo það sé á hreinu.það eiga örugglega fleiri eftir að tárast.

Sigurbjörg Jónsdóttir (IP-tala skráð) 17.4.2010 kl. 17:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband