Íslandsbanki hlýtir niðurstöðu Hæstaréttar

Íslandsbanki segir í tilkynningu að þó bankinn hafi ekki verið aðili að dómsmálunum í dag þá muni bankinn hlíta úrskurði Hæstaréttar sem dæmdi gengistryggð krónulán ólögmæt í dag.

Íslandsbanki áréttar svo að þrátt fyrir dómsniðurstöður Hæstaréttar hafi bankinn sterka eiginfjárstöðu og uppfylli eftir sem áður eiginfjárkröfur FME að eigin sögn.

Tilkynninguna má lesa í heild sinni hér:

„Íslandsbanki mun fara vandlega yfir dómsniðurstöðu Hæstaréttar vegna gengistryggðra bílalána og fylgjast með þeim skrefum sem stjórnvöld og Alþingi hyggjast taka í málinu á næstu dögum. Þó svo að Íslandsbanki Fjármögnun hafi ekki verið aðili málsins mun bankinn hlíta niðurstöðu dómsins og aðgerðum stjórnvalda og löggjafans í málinu ef til þeirra kemur.

Bankinn vill árétta að þrátt fyrir dómsniðurstöður Hæstaréttar hefur bankinn sterka eiginfjárstöðu og uppfyllir eftir sem áður eiginfjárkröfur FME.

Íslandsbanki hefur áður lýst því yfir að þeir viðskiptavinir sem þegar hafa nýtt sér úrræði bankans vegna gengistryggðra bílalána hafa ekki fyrirgert mögulegum betri rétti sínum leiði niðurstaða Hæstaréttar eða stjórnvalda til hagfelldari niðurstöðu.(visir.is)

Björgvin Guðmundsson


    « Síðasta færsla | Næsta færsla »

    Bæta við athugasemd

    Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

    Innskráning

    Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

    Hafðu samband