Samfylkingin fékk viðvörun

Á milli tvö og þrjú hundruð manns sitja flokkstjórnarfund Samfylkingarinnar sem hófst á Seltjarnarnesi í morgun. Fjallað er um stöðu flokksins í ríkisstjórnarsamstarfinu og slakt gengi í nýliðnum sveitarstjórnarkosningum, auk þess sem starf umbótanefndar verður kynnt.

Þetta er þriðji fundur flokkstjórnar Samfylkingarinnar á árinu. Hann hófst klukkan tíu í morgun með erindi Ólafs Harðarsonar stjórnmálafræðings, sem fór yfir úrslit sveitarstjórnarkosninganna í maí, kosninga þar sem flokkurinn hlaut slaka útkomu, sérstaklega í Reykjavík. Þetta er aðalumfjöllunarefni fundarins, sem ber yfirskriftina Skilaboð kjósenda. Fjölmiðlum var ekki leyft að fylgjast með fundinum í morgun, þeim verður aðeins hleypt inn til að fylgjast með ræðu formanns flokksins og kynningu umbótanefndar á eftir.

Samkvæmt dagskrá standa nú yfir málstofur, um stöðu flokksins í sveitarstjórnum, í ríkisstjórnarsamstarfinu með Vinstri Grænum og um viðbrögð og aðgerðir flokksins eftir hrunið og útkomu rannsóknarskýrslunnar. Formaður flokksins, Jóhanna Sigurðardóttir, stígur í pontu eftir hádegi og eftir ræðu hennar verður starf umbótanefndar flokksins kynnt. Sú nefnd var sett á laggirnar í vor og er ætlað að fjalla um störf og ábyrgð Samfylkingarinnar í aðdraganda hrunsins. Af samtölum við flokksmenn má ráða að þetta málefni verði áberandi þegar almennar umræður hefjast síðar í dag.(visir.is)

Slakt gengi flokksins í sveitarstjórnarkosningum má túlka sem viðvörun til flokksforustunnar og ábendingu um að standa sig betur við að framkvæma stefnumál flokksins. Flokkurinn hefur ekki staðið sig nógu vel í velferðarmálum og ekki heldur í kvótamálinu.

 

Björgvin Guðmundsson

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband