Íhaldið vill draga umsókn um aðild að ESB til baka

Landsfundi Sjálfstæðisflokksins lokið. Rétt fyrir fundarlok samþykkti fundurinn skýra kröfu um að aðildarumsókn að ESB yrði dregin til baka.

Um 1000 sjálfstæðismenn hafa setið landsfund flokksins í Laugardalshöll í gær og í dag, mun færri en á landsfundinum í fyrra. Helstu umræðuefni fundarins hafa verið innri mál flokksins, styrkjamálin og aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu. Það er mikið hitamál meðal sjálfstæðismanna en í stjórnmálaályktun var vegferð ríkisstjórnarinnar inn í ESB mótmælt. Mikil spenna var á fundinum þegar tillaga Halldórs Gunnarssonar í Holti var samþykkt, um að skora á forystu og þingmenn að íhuga stöðu sína með tilliti til fylgis flokksins. Þá var samþykkt að styrkþegar flokksins ættu að sýna ábyrgð sína með því að segja af sér og nafngreindi Halldór sérstaklega þá Guðlaug Þór Þórðarson og Gísla Martein Baldursson. En megintilgangur fundarins var að kjósa formann og varaformann. Pétur H. Blöndal gaf óvænt kost á sér í formennsku í morgun en Bjarni Benediktsson sóttist eftir endurkjöri. Það fékk hann með 62% atkvæða. Pétur fékk 30%. Sagði Bjarni í ræðu að nú væri tíminn fyrir Sjálfstæðisfólk að standa saman og vinna sig upp úr lægðinni. Hvatti hann til þess að þessi dagur yrði að vendipunkti í sögu flokksins.

Ólöf Nordal, Lára Óskarsdóttir og Steinunn Ruth Stefnisdóttir gáfu kost á sér til varaformann og vann Ólöf sannfærandi sigur með 70% atkvæða.(ruv.is)

íhaldið snýst eins og snælda í Evrópumálum.

Björgvin Guðmundsson

 

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband